Kirkjuritið - 01.05.1956, Blaðsíða 44
234
KIRKJURITIÐ
son, fulltrúi Prestafélags íslands. Ásgeir Sigurgeirsson, fulltrúi Sambands
bindindisfél. í skólum. Þórður Kristjánsson, fulftrúi Sambands ísl. barna-
kennara. Páll Sigurðsson, fuUtrúi Sambands ísl. kristniboðsfélaga. S. Heið-
ar, fulltrúi Sjöunda dags adventista á Islandi. Brynleifur Tobiasson, fuU-
trúi Stórstúku Islands. Stefán Ol. Jónsson, fulltrúi Ungmennafélags Islands.
•f*—ii"—1111—h"—»"—""—"»—»»—»"—»»—»»—..•+
------| Erleodor fréttir j----------------------------------
*--------------------------------—*
Nokkrir kristnir áhuga- og áhrifamenn, þ. á. m. einn biskup-
anna og Lewi Pethrus foringi Hvítasunnumanna, hafa skorað á trúfólk í
Svíþjóð að láta stjórnmálin meira til sín taka. Flest blöðin eru því andvíg,
að efnt sé til kristilegs stjórnmálaflokks. Telja, að það muni enn auka á
glundroða stjórnmálanna, enda hafi menn næsta skiptar skoðanir á ver-
aldlegum vandamálum, hvað sem trúarskoðunum þeirra líður.
Fra Finnlandi. Finnska þjóðin hefir nú ákveðið að endurreisa kirkj-
ur í Porkala og mun verja til þess miklu fé. Kirkjulíf þar beið mikinn hnekki
við hersetu Rússa og þarf að eflast á ný. Porkala telst til biskupsdæmisins
í Borga. Þar er nú G. O. Rosenqvist biskup.
Nyr erkibiskup. Dorotheos biskup í Larrissu hefir nýlega verið ný-
Jega verið kosinn erkibiskup Aþenu og yfirbiskup Grikklands.
Dr. Frode Beyer hefir verið skipaður biskup í Haderslev á Suður-
Jótlandi. Fæddur 1894, prestvígður 1924. Hefur síðan verið prestur og
prófastur á Jótlandi.
Lausung æskunnar er nú á dagskrá víða um lieim. Erlend blöð
herma, að Voroshilov marskálkur hafi vikið að þessu vandamáli á flokks-
þingi kommúnista í Moskvu í vetur. Taldi hann þrjár meginrætur rótleysis
æskunnar: Alls herjar upplausn einkum á styrjaldarárunum, los á heini-
ilislífinu á undanförnum árum, og loks hefði áróðursmönnum kommúnista
mistekist að glæða nokkrar verulegar liugsjónir í brjóstum unglinganna.
Stjórnmálin væru ekki einhlít né næg. Það þyrfti annað og meira en
ákveðnar skoðanir á efnahagsmálum til að halda uppi blómlegu og hani-
ingjuríku þjóðfélagi. — í Suður-Afríku er talið, að allmikið beri á eitur-