Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.05.1956, Side 46

Kirkjuritið - 01.05.1956, Side 46
236 KIRKJUEITIÐ Góðar gjafir. Séra Sigurjón Jónsson í Kirkjubæ skrifar: „í lok messu- gjörðar, er merki voru seld fyrir Ekknasjóð, afhentu 2 menn mér sínar 50 kr. hvor vegna sjóðsins. Annar þeirra var Þórður Benediktsson kennari á Eið- um. Hinn er heimamaður á Eiðum, sem ekki vill láta nafn sins getið. — Þá vildi ég biðja þess, að geta kvenna þeirra í Hofteigssókn, sem hlúð hafa mjög að kirkjulegri menningu þar. En það eru þær húsfreyjumar Kristjana Guðmundsdóttir og Lilja Magnúsdóttir á Hvanná. Hafa þær gefið kirkj- unni vandaðan, heimaunninn dregil á kirkjugólfið og fermingarkyrtla. Þá hefur dóttir Lilju, Sigríður Benediktsdóttir, gefið kirkjunni mjög vandaðan, útsaumaðan altarisdúk. Er það mikið verk og þarft. Vann hún þetta verk sjálf, aðeins 16 ára gömul. Ein kona enn í Hofteigssókn, Brynhildur Stef- ánsdóttir ljósmóðir, hefir mjög látið til sín taka kirkjuleg mál. Hefir auk þess unnið að því að fegra kirkjugarðinn með því að gróðursetja þar tré. Þá hefir Kvenfélag Eiríksstaðasóknar gefið Eiríksstaðakirkju altaristöflu eftir Jóhann Briem. — Páskadagskvöld, áhrifaríka mynd.“ Guðný Guðmundsdóttir Matthíassonar frá Grimsey, lék nýlega ein- leik á fiðlu við útvarpsmessu frá Bamaskóla Kópavogs. Hún lék í fyrsta sinni við messu á páskum í fyrra. Þá var hún sjö ára, og mun fágætt að svo ung börn hafi slíka leikni og djörfung til að bera á þessu sviði, enda vakti leikur hennar áðdáun margra. Áttunda ársþing Slysavarnafélags íslands var lialdið í Reykja- vík 22.-26. apríl. Fjöldi fulltrúa mætti, þar á meðal 14 prestar. Ýmis merk mál voru afgreidd, þ. á. m. samþ. að ganga í Landssambandið gegn áfengis- bölinu. Siðasta fundardaginn gafst fuiltrúum kostur á að sjá björgunarskútu Norðurlands, sem nefnist Albert, hleypt af stokkunum. Forseti félagsins er Guðbjartur Ólafsson hafsögumaður. Tvær af elztu og kunnustu prestsekkjum landsins eru nýlátnar. Frú Ingibjörg Jónasdóttir frá Ámesi dó 30. f. m. Hún var dóttir séra Jón- asar Guðmundssonar á Staðarstað, sem var kunnur menntaskólakennari og síðar nafntogaður ræðumaður. Lengi stóð frú Ingibjörg við hlið manns síns séra Sveins Guðmundssonar í blíðu og stríðu. Gáfuð mannkostakona með óbilandi trúartrausti. — Frú GuSný GuSmundsdóttir frá Grímsey lézt eftir langverandi vanheilsu á 87. afmælisdegi sínum, 29. f. m. Hún var sann- kölluð Bergþóra séra Matthiasi Eggertssyni manni sínum, og ástsæl af öll- um, enda merk og góð kona á alla lund. — Báðar þessar konur áttu mörg böm, sem sýndu þeim mikið ástríki í elli þeirra.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.