Kirkjuritið - 01.04.1959, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.04.1959, Qupperneq 38
180 KIRKJURITIÐ hvar vera svipaðar og hér, að því er snertir eftirlit með slík- um börnum, afskipti af heimilum o. s. frv. Nú er það vitað mál, að hvorki hér né annars staðar er þessi aðferð fullnægjandi. Þá hefir og verið farin sú leið að mynda sérstök heimili fyrir þá unglinga, sem illa eru staddir að þessu leyti. Slíkar stofnanir eru með ýmsu sniði, en ríkjandi stefna er sú, að hæli þessi séu sem mest rekin sem skólar eða vinnu- hæli. Það er einnig sú stefna, sem fylgt hefir verið hér á landi, og það vakti athygli, þegar ég skýrði frá því, að af 20 drengj- um, sem útskrifazt hefðu frá Breiðuvíkurheimilinu, hefði að- eins einn piltur valdið nokkrum vandræðum eftir á. Þetta bend- ir til þess, að þó að eitthvað megi sjálfsagt finna að vorri eigin stjórn á þessum málum, séum vér samt á réttri leið. Hitt er annað mál, að hér hefði fyrir löngu átt að vera komið heim- ili fyrir stúlkur, sem valda sjálfum sér og öðrum vandræðum, en það heimili á nú senn að reisa, og þyrfti því að vera lokið sem fyrst. Annað, sem vakti athygli mína á þinginu í Stokkhólmi, var það, að allir virtust sammála um, að aldursflokkurinn frá 18—25 ára gæfi tilefni til sérstakrar athugunar, en það er ein- mitt þetta, sem vér einnig verðum varir við hér. Það hefir oft verið talað um, að vandræðaástand ríkti í fangelsismálum hér á landi, en ég hygg, að þau vandræði stafi ekki sízt af því, að vér höfum aðeins eitt fangelsi, þar sem unglingar á þessum aldri eru innan um roskna og rótgróna afbrotamenn. Hér þarf að vera eitt fangelsi fyrir menn. sem þurfa stranga gæzlu í langan tíma, og síðan önnur stofnun fyrir þá unglinga, sem kallaðir eru „jeune adultes“, eða ung-fullorðnir. Að ég kveð svo fast að orði um fyrra atriðið, er ekki af neinni grimmd eða harðneskju, heldur af því, að ég þekki persónulega nokkuð stóran hóp þeirra manna, sem setið hafa í fangelsi, og þeir hafa lokið upp einum rómi um, að það sé miklu betra að gæzl- an sé svo ströng, að þeir viti fyrir víst, að ekki sé unnt að strjúka, heldur en að kveljast stöðugt af órólegum heilabrot- um um það, hvar hægt sé að finna smugu til undankomu. Það kemst aldrei jafnvægi á hugann undir slíkum kringumstæðum. Hinir ungu menn, sem ég hér hefi nefnt, eru að vísu komnir á þann aldur, að þeir eiga að eðlilegum hætti að geta borið ábyrgð á sjálfum sér, en reynslan sýnir, að margir þeirra eru

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.