Kirkjuritið - 01.04.1959, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.04.1959, Blaðsíða 48
Iinil<mdar fréUir, Frú Elín Guðbjörg GuÖmundsdóttir, ekkja séra Gísla Kjartans- sonar, síðast prests að Sandfelli í öræfum, lézt 9. apríl, á 83. aldurs- ári. Hún var þrekmikil og gáfuð ágætiskona. Kirkjudagur Húsavíkursóknar var haldinn 12. apríl. Fyrst fór fram guðsþjónusta í kirkjunni. Séra Friðrik A. Friðriksson prófastur pré- dikaði, en þeir séra Pétur Sigurgeirsson þjónuðu báðir fyrir altari. Eftir messu flutti formaður sóknarnefndar, Sigurður Gunnarsson skólastjóri ávarp og séra Pétur Sigurgeirsson erindi um æskulýðs- starf Þjóðkirkjunnar. Síðan var samkoma í samkomuhúsi bæjarins. Fór þar fram m. a. söngur og myndasýning. Söngmót Kirkjukórasambands Dalaprófastsdœmis var haldið að Nesodda í Miðdölum, Dalasýslu, sunnud. 5. apríl s. 1. Fjórir kirkju- kórar tóku þátt í mótinu: Söngfélagið Vorboðinn, Laxárdalshreppi og kirkjukórar Hvamms-, Staðarfells- og Staðarhólskirkju. Séra Egg- ert Ólafsson prófastur, Kvennabrekku, setti mótið með snjöllu ávarpi. Því næst sungu allir kórarnir sameiginlega „Söngheilsan" eftir Han- del. Þá sungu kórarnir allir hver í sínu iagi nokkur lög við ágætar undirtektir. Einsöngvarar með kirkjukór Staðarhólskirkju voru frú Guðbjörg Jónsdóttir, Stóra-Holti, og Ellert Halldórsson, Saurhóli. Að lokum sungu allir kórarnir sameiginlega nokkur lög og að síðustu þjóðsönginn. Þegar söngnum lauk, kvaddi Hallgrímur frá Ljárskóg- um sér hljóðs og ávarpaði söngfólkið og gesti. Þakkaði hann söng- stjóranum, Magnúsi Jónssyni frá Kollafjarðarnesi, sérstaklega góða samvinnu og ágæta söngstjórn. Magnús hefir dvalizt í héraðinu und- anfarnar vikur og æft söngfólkið. Auk þess kenndi hann söng um tíma í Húsmæðraskólanum að Staðarfelli. Söngstjóri og söngfólk hafa með þessu unnið mikið og gott starf. Æfingar voru vel sóttar og söngnum vel fagnað. Stjórn Kirkjukórasambands Dalaprófasts- dæmis skipa þessir menn: Halldór Þ. Þórðarson, Breiðabólsstað, for- maður, Sigurður Þórólfsson, Innri-Fagradal, ritari, Kristján Jóhanns- son, Litla-Múla, gjaldkeri, og meðstjórnendur Guðbjörg Jónsdóttir, Stóra-Holti, og Helga Jónsdóttir, Garði. — F. Þ. Gjafir til Glaumbœjarkirkju. Jón Jóhannesson, bóndi á Ytra- Skörðugili á Langholti, sem lézt 27. jan. 1957, var í mörg ár í sókn- arnefnd Glaumbæjarsóknar og féhirðir Glaumbæjarkirkju og lét sér mjög annt um kirkju sína. Á s. 1. ári gaf ekkja hans, Agnes Guð- finnsdóttir, og börn þeirra, Unnur og Björn, Glaumbæjarkirkju mikl- ar og góðar gjafir til minningar um Jón. Gjafir þessar eru kristalls- Ijósakróna ásamt tveimur veggljósum af sömu gerð, fagrir gripir, sem komið hefir verið fyrir í kór kirkjunnar, þá blómsturvasi úr silfri, sem stendur á altari, og síðast en ekki sízt altarisdúkur saum- aður af Unni á Ytra-Skörðugili. Á honum er mikið verk og snilldar-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.