Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1961, Blaðsíða 3

Kirkjuritið - 01.07.1961, Blaðsíða 3
Ávarp og yfirlit biskups viS setningu prestastefnunnar Hver , sem elskar mig, mun varðveita mitt orð, og faðir •ninn mun elska liann og til lians munurn við koma og gjöra °kkur bústað hjá honurn. Með þessurn orðum frelsarans vil ég lieilsa yður, bræður minir í prestastétt, og yður öðrum, sem ég næ að ávarpa við setningu Prestastefnu Islands. Hin lieilögu orð eru úr skiln- nð’arræðu Jesú, þeirri, sem liann flutti þeim síðustu samveru- ®tundim'ar á skírdagskvöld. Hann ræðir þar ekki svo mjög l,m það, sem í vændum er næst, píslir sínar og dauða, heldur nieira um hitt, sem síðan muni gerast, um upprisu sína og nframhaldandi samlíf sitt með lærisveinum sínum fyrir lielg- an anda sinn. M. ö. o.: Hann talar um kirkjuna. Vér konmm sainan á prestastefnu í dag. Hún er þáttur í lífi kirkjunnar á Islandi, samvera vor einn liður á starfsskrá arsins, ein andrá ævidagsins í þjónustu kirkjunnar. Vér er- l,ni örfá strá á stórum teig, samtíðarkynslóð kristinna manna a voru landi fáein smálauf á meiði, sem hefur staðið um aldir, sterkari en aðrir stofnar á jörð, limmeiri og laufríkari en nllur annar vöxtur. Hver er leyndardómur þessarar staðreynd- ar? Hvert er það afl, sem liefur knúð þennan meið til vaxtar, vakið sífellt nýja sprota, ný strá? Svar: Jesús Kristur átti þá nienn, eignaðist þá menn, sem elskuðu hann. Og hvað er að elska hann? Það er að varðveita lians orð. Þetta er kirkjan, 'íl hennar. Sá, sem elskar mig, mun varðveita mitt orð, og faðir minn mun elska liann og til hans munum við koma og Sj'öra okkur hústað hjá honum. Þetta er fyrirlieitið um heil- a"an anda livítasunnunnar, andann, sem h'fgar, kallar til Krists, þpplýsir um hann, helgar þig lionum, gefur J)ér hann. 1 orð- lnu mætir liugur liug. Orð Iírists er liugur Krists og sá hugur 19

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.