Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1961, Qupperneq 4

Kirkjuritið - 01.07.1961, Qupperneq 4
290 KIRKJURITIÐ er andi föðurins, sjálfur Guð. Guð kemur til þín í Jesú Kristi og Kristur kemur til þín í orði sínu og orðið keinur til þín í kirkju Iians. Þú ert í kirkju, kemur til kirkju, starfar í kirkju af því að þú vilt varðveita orð Krists, tengja hug þinn liuga lians, af því þú vilt vera Krists, af því að þú ert einn af þeim. sem elska lninn. Glska hann. Þetta er sterkt orð. Þér finnst e. t. v. nokkuð l’ast að kveðið að segja þetta, að J)ú elskir Krist. En framhjá því verður ekki komizt, að Jesús kveður svona fast að, Jiegar hann rekur til róta })á afstöðu, sem sker úr um Jmð, hvort liann á sér bústað í mannlegri sál eða ekki, livort vér tilheyr- um lionum og þar með kirkju hans eða gerum það ekki. Og þegar J)ú svo skyggnist í eigin harm, mun þér að líkindum þykja sem þetta stóra orð fari næsta fjarri því að geta átt við |)ig, J)ær kenndir og lmgðir, sem mest liafa rúm hið innra með þér. Ég ætti að geta skilið |)ig vel, vinur minn, ef |)ú liugsar svo, J)ví ég get sagt nákvæmlega hið sama, og var í rauninni ekki að gera |)ér upp hugsanir, heldur að segja til minna eigin- Símon Pétur, postulahöfðinginn, sagði einu sinni á stórri stundu: l'il livers ættum vér að fara? Þú hefur orð eilífs lífs. Þetta sagði hann við meistara sinn og Drottin. En síðar, á annarri stórri stundu sagði liann: Herra, J)ú veizt allt, ]>ú veizt, að ég elska J)ig. Hvort var stærra, hvort var erfiðara? Ég veit, hvað mér finnst. Hið fyrra er mér einsætt, ég get ekki farið frá honum, enginn annar hefur það, sem mig vantar, sem ég þrái og þarfnast, það orð, J)á lausn, sem allt veltur á fyrir mig, fyrir allt, sem mér er kært og dýrmætt, fvrir land og J)jóð og lönil og heim, fyrir tíma og eilífð. En hið síðara, að geta sagt J)etta: Þii veizt allt, |)ú veizt að ég elska ])ig — það er sannar- lega harla oft of mikið í mínum munni. Því liann veit allt- Hann veit ])á að sönnu líka J>etta, að mér ])ykir vænt um hann, að ég ann honum, — hvernig ætti ég að geta annað, hvernig væri mér farið, ef ég elskaði hann ekki, frelsara minn, rninn eina styrk og einu von, J)ann hjartans vin, sem hjartað Jjekkir, eins og vér syngjum svo oft. Víst lilýt ég að elska hann. En hann, sem veit allt og |)á einnig J)etta, liann veit líka svo margt annað um mig, svo margt, sem skyggir á, veit,

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.