Kirkjuritið - 01.07.1961, Side 50
Aðalfundur Prestafélags Islands
Aðalfundur Prestafélafís íslands var haldiun í liátíðasal Há-
skólans þriðjudaginn 20. |).ju., daginn fyrir setningu presta-
stefnunnar. Var fyrst gengið í Kapelluna til morgunbæna, sem
sr. Guðmundur Guðmundsson á IJtskálum slýrði.
I upphafi fundarins flutti formaður félagsins, sr. Jakob Jóns-
son, skýrslu um störf liðins árs. Voru síðan rædd félagsmál, m.a.
útgáfa Kirkjuritsins. Þá flutti formaður framsöguerindi um
starf kirkjunnar við breytta |)jóðfélagsl)ætti, en það var aðal-
mál fundarins að ])essu sinni. Eftir miklar umræður var ltorin
fram og samþykkt eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur Prestafélags Islands, haldinn í Reykjavík
20. júní 1961 samþykkir að kjósa 5 manna nefnd innan
félagsins til undirbúnings endurskoðunar á starfsskipan,
starfsháttum og fjárhagsgrundvelli Þjóðkirkjunnar, og
skili nefndin áliti til næsta aðalfundar félagsins“.
I nefndina voru kosnir: Sr. Jakob Jónsson, sr. Jónas Gísla-
son, sr. Ólafur Skúlason (ritari nefndarinnar), sr. Sveinhjörn
Högnason og dr. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor (sem er for-
maður nefndarinnar).
Ennfremur var samþykkt þessi tillaga:
„Fundurinn skorar á kirkjustjórnina að framfylgja taf-
arlaust lögum um fjölgun ])resta í þétthýlinu, ])ar sem
tilskilin mannfjölgun er fyrir hendi“.
tJr stjórn áttu að ganga: Sr. Jón Þorvarðsson og sr. Sigurjón
Árnason. Voru ]>eir háðir endurkjörnir. Aðrir í stjórn eru: Sr.
Gunnar Árnason, sr. Jakoh Jónsson og sr. Sigurjón Guðjóns-
son, prófastur.
Um kvöldið var sameiginleg kaffldrykkja á Hótel Garði fyrir
presta og prestskonur. Aðalræðu vfir horðum flutti sr. Friðrik
A. Friðriksson, prófastur á Húsavík.