Kirkjuritið - 01.11.1969, Qupperneq 18
KIRKJUniTIÐ
400
forsetasess félagsins, Jón J. Bíldfell og ég. Þá liafa prestarnir
héðan lieiman nm haf, ank séra Ragnars, sem dvalið hafa
vestan hafs, lagt mikinn og góðan skerf til þjóðræknisstarfsins
þeim megin liafsins.
Sérstaklega ber einnig að geta þess, að þáverandi biskup
Islands, dr. Sigurgeir Sigurðsson, var fulltrúi ríkisstjórnarinnar
og íslenzku þjóðarinnar á 25 ára afmæli Þjóðræknisfélagsinsi
og var koma lians vitanlega mikill og merkilegur viðhurður
í sögu félagsins, og efldi stórum hin kirkjulegu og þjóðræknis-
legu hönd milli Islendinga yfir liafið. Sama máli gegnir uni
kærkomnar lieimsóknir þeirra dr. Asmundar Guðmundssonar,
fyrrverandi biskups, og núverandi biskups, dr. Sigurbjarnar
Einarssonar. Með komum þeirra var einnig ofinn sterkur þatt-
ur í trúar-ætternis og menningartengslin milli Islendinga yf"
liið breiða djúp.
Fyrir allt liið framantalda, jiótt stiklað liafi verið á storu,
vil ég, lierra biskup, í nafni Þjóðræknisfélags Islendinga 1
Vesturheimi, flytja íslenzku þjóðkirkjunni ómælda þökk <>r
votta lienni virðingu okkar íslendinga vestan liafs.
I mínum augum liefir kristin kirkja um gjörvallan heim
aldrei átt mikilvægara ldutverki að gegna lieldur en einnuú
á vorum dögum, og lífsorð hennar, kærleiks- og friðarboð-
skapur liennar, aldrei átt meira erindi til vor mannanna barna
livarvetna.
Sál mannsins má ekki drukkna í flæSandi straumi tœkninK-
ar, þótt eftirsóknarverð sé og ágæt um margt. Spakleg orð
Einars Benediktssonar tala til vor eggjandi liljómi:
Sjálft hugvitið, þekkingin hjaðnar sem blekking,
sé hjarta ei með, sem undir slær.
„Kirkjan er oss kristnum móðir“. segir í sálminum fagra-
íslenzka Þjóðkirkjan er oss, sem skírð vorum og fermd innan
lrennar, og nærðumst jtannig í trúarlegum skilningi við br jós1
liennar, móSir í sérstökum og varanlegum skilningi, vegn;l
Jiess, að álirif liennar lifa með oss og fylgja oss til daganna
enda, hvert, sem sporin liggja, — og enn lengra, jiví að h’fs-
orð kristinnar kirkju, eilífðarboðskapur liennar, varpar hjört'
um ljóma út yfir gröf og dauða.