Kirkjuritið - 01.06.1973, Page 56
HEIMIR STEINSSON, rekton
Tilraunin hefur tekizf
Rœða, flutt við fyrstu skólaslit Lýðháskólans í Skálholti hinn 18. maí sl-
Nemendur, kennarar, góðir gestir.
Fyrst allra orða vil ég þakka þeim
biskupi íslands og Þórarni Þórarins-
syni það, sem þeir hafa til okkar tal.
að á þessari stundu. Engum einstök-
um mönnum mun það fremur að
þakka , að við erum hér saman kom-
in, að við höfum átt hér athvarf und-
anfarna mánuði og fengið að fram-
kvœma þá hluti, sem við fögnum nú.
Engin vinarorð og blessunaróskir met-
um við meir en þau, sem úr þeirri átt-
eru runnin. Við biðjum þessa góðu
gesti að bera kveðju öðrum Kirkju-
ráðsmönnum og meðlimum í stjórn
Skálholtsskólafélagsins ásamt þökk-
um fyrir allan beina fyrr og síðar, —
Mér er það óblandið ánœgjuefni
að fá að skýra frá því, að fyrstu til-
raun til lýðháskólareksturs 1 Skálholti
vetrarlangt er nú lokið með viðunandi
árangri. Ég endurtek: Niðurstaðan er
að mínum dómi viðunandi. Hér hef-
ur ekkert afrek verið unnið, engin
ástœða er til að draga þau fram hin
stóru orðin. En starf það, sem farið
hefur fram í Skálholti í vetur, sýnir
með einföldum en ótvírœðum hœtti,
að lýðháskóli getur þrifizt á fslandi o
ofanverðri tuttugustu öld. Sú var von
þeirra, er að tilrauninni stóðu, að hón
mundi leiða þetta í Ijós. Nú er niðiV'
staðan fengin, og hún er afdráttar'
laus, svo langt sem hún nœr.
Skylt er að geta þess, að gildi urf'
rœddrar tilraunar eru nokkur takmörk
sett. í fyrsta lagi hefur Lýðháskólinn
í Skálholti aðeins starfað eitt skólaar’
Þó svo að starfinu hafi reitt bcerileð0
af þennan tíma, er því ekki að ley
að áframhaldandi tilraunastarfseÞ1!
er nauðsynleg, ef að þvi er stefnt 0
komast að niðurstöðu, sem hefur vðr
anlegt gildi. I annan stað hefur sö
nemendahópur, sem húsrúm var fyrir
í vefur, verið nœsta takmarkaður ö
höfðatölunni til. Stœrri nemendahóp^
ur mun án efa gefa gleggri mynd ö
viðgangi lýðháskóla við íslenzkar
stœður.
Allt að einu er ástœða til að cetiö'
að aðstandendur Skálholtskóiö'
frœðsluyfirvöld og áhugamenn urn
lýðháskólamál fái dregið ýmsarály^
anir af því starfi, sem hér hefur far'
fram. Skylt er að geta þess, að a
150