Fanney - 01.12.1905, Blaðsíða 18
14
F A N N E Y.
»Það skulum við l)æði gera«,
sagði konungurinn. Nú erum
við bæði börn hennar. Komdu!
Við skulum strax sækja hana«.
Þegar þau komu út, stóð vagn
fyrir dyrum með 6 hestum fyrir.
IJau stigu inn í vagninn og óku
burt í áttina til kofans.
Eftir dálitla slund voru þau
komin inn i fátæklegu híbýlin
gömlu konunnar. Hún varð svo
frá sér numin af undrun yfir
allri þeirri dýrð er hún sá, að
hún kom ekki upp nokkru orði.
Svo l'ór hún með þeim heim í
konungshöllina.
Fátæka slúlkan hún Katrín
var nú orðin drotning. Hún og
engin önnur átti nú að bera
kórónuna; og hún var tignarleg
þar sem hún sal í hásætinu við
hliðina á konunginum, sem lnin
elskaði af öllu hjarta og hafði
gerl hamingjusaman. Pau lifðu
saman mörg ár og voru elskuð
og virt af þjóðinni. — Og þó
mörg ár séu nú liðin siðan
þetta skeði, þá liafa öll góð börn
enn þá gaman af að heyra sög-
una af fátæku stúlkunni með
hreina hjartað.
(A. St. þýddi).
H U N D H U Ð U M
þúsunda af krist-
num heimilum
eru reist upp jóla-
tré á hverju ári
og kveiktur ó-
tölulegur ljósafjöldi til að gera
stundina bjarta og hátíðlega og
gleðja börnin. Og þegar þið
eruð að dansa í kringum jóla-
tréð vkkar, börnin góð, þá eru
miljónir af börnum á ykkar reki
í öllum álfum heimsins að gera
slíkt hið sama.
Og alstaðar ber eitlhvað líkt
fyrir mann, hvort sem það er
suður í Brasilíu, austur í Japan
eða norður á íslandi: Falleg
grein af ungu grenitré er ilutt
heim og selt upp á borðið. —
Grenitréð er grænt allan vetur-
inn og því bezt til þess fallið
af öllum trjám að vera jólatré.
Því miður vex það ekki liér á
landi, svo við þurfum að fá
okkur jólatré frá Noregi. Utan
á það er svo liengt alls konar
skraut og jólagjafir og mörg