Fanney - 01.12.1905, Síða 50

Fanney - 01.12.1905, Síða 50
46 FANNEY. BARDAGI VIÐ BLEKFISK. U Ð U RSTRÖND Ástralíu er aðal- að seturs staður blekfiskanna. Sá maður, sam er svo djarfur að l’á sér liað þar við ströndina, á það á hættu, að verða umvafinn af hinum 8 löngu örmum þessa ó- geðslega dj'rs. Ástralskt blað eitt segir eftir- farandi sögu um bardaga við blekfisk: »Kafarinn Smale fór niður á sjávarbotn til að sprengja burt klett, sem tálmaði siglingu upp í ána Moyne. Þegar liann var nýbúinn að koma dynamit- sprengitólunum fyrir, fansl lion- um sem kaðli væri brugðið um sig miðjan og hert að. í sama bili var vinstri handleggur hans óhreyfanlegur, eins og liann væri undir fargi eða í pressu. Hann vai hertekinn af einum af liinum hræðilegu bleldiskum. í myrkrinu gat hann eygt ó- freskjuna, þar sem hún var inni í klettaskútanum. Hann reyndi að losa sig, cn það var ómögulegt. Það var eins og hann væri bundinn ineð járnviðjum. Og í viðbót var nú ]>riðja armi ófreskjunnar vaíið um fót hans. Ástandið var óttalegt. — Ef mennirnir, sem voru uppi í bátnum, tækju nú að draga liann upp, mundi bandið óðara slitna og þá væri úli um liann. Hann hafði nú verið niðri fjórðung stundar, og mennirnir í bátnum voru orðnir leiðir að bíða; þeir sendu því það merki niður til lians með þræðinum, að þeir vildu fara að draga hann upp, en hann gaf þeim aftur það merki, að hann væri ekki tilbúinn. Enn þá hafði hann lausa hægri höndina. Hann reyndi nú að losa dýrið við kletlinn, því að ómögulegt var honum að losna úr klóm þess, og því ekki um annað að gera en að láta draga það upp með sér. Hann barði með járni á einn af örmunum, sem það hafði sogið fastan í klettinn, þangað til lrann slepti klettin- um og val'ði sig um kropp kal'- arans. Fjórir arínarnir voru nú faslir við klettinn og fjórir vafðir um manninn. Hann hélt nú áfram að losa þá við klettinn; og jafn- framt því sem þeir sleptu klett- inum vöfðust þeir um kafarann. Þó haí'ði hann alt af lausa hægri liöndina og frían liálsinn.

x

Fanney

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.