Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Síða 2
GÓDAR BÆKUR!
RITSAFN JÓNS TRAUSTA,
skáldjöfursins, sem er brautryðjandi nútíma skáldsagnagerðar á Islandi. —
I.—IV. bindi Ritsafnsins verður á markaði fyrir jól. Nokkur eintök í forkunnar
vönduðu handunnu skinnbandi. Tilvalið fyrir bókamenn.
KVÆÐI OG SÖGUR
eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson, hið góðkunna skáld, er lézt í æsku. Þessi
bók hefir verið ófáanleg um langa hríð og mjög eftirsótt. Nýja útgáfan er
vönduð og vel úr garði gerð í hvívetna. Nokkur eintök í vönduðu handunnu
skinnbandi.
SANNÝALL
Þetta er 5. bindi Nýals dr. Helga Pjeturss, hins víðkunna vísindamanns og
ritsnillings. Af fyrri bindum Nýals fást enn: Ennýall, Framnýall og Viðnýall.
UTILlF,
handbók um ferðalög og útivist, samin af tíu nafnkenndum mönnum, sem
eru ágætlega til þess færir, búin út af Joni Oddgeir Jónssyni. Hér er um mjög
þarfa og tímabæra bók að ræða, er æska landsins mun taka tveim höndum.
BLAA EYJAN,
bók um framhaldslífið, sem byggist á reynslu hins nafnkunna blaðamanns,
William Stead, er fóst með Titanic. Þetta er að allra dómi einhver hugðnæm-
asta bók, er skráð hefir verið um reynslu manna á öðrum sviðum tilverunnar.
Góð bók er bezta eignin. Eignizt framantaldar bækur áður en það er um seinan.
Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar.
AFHÆLISBÓKIN
Hvort sem þér eruð bókamaður eða ekki, þá er afmælis-
bókin sjálfsögð á heimili yðar. Við hvern einasta dag ársins
er vísa eftir eitthvert íslenzkt skáld, auk þess fæðingar- eða
dánarár einhvers merks manns. Þá eru við hvern dag þrjár
auðar línur, þar sem þér eigið að láta vini yðar og ættingja
skrifa nöfn sín og fæðingarár við afmælisdag þeirra. Bókin
er mjög fróðleg og vönduð, prentuð á góðan pappír og í
skrautlegu bandi.
Kaupið Afmælisbókina.
Gefið vinum yðar hana í jóla- eða afmælisgjöf.
Afmælisbókin er gestabók heimilisins.
Fjallkonuútgáfan.