Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Síða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1943, Síða 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 0 OKT.—DES. 1943 o XXXVI. ÁR, 10,—12.. HEFTI. Höfundur Hornstrendingabókar Ritstjóri nýrra Kvöldvakna hefir beðið mig að skýra lesendum þeirra lítið eitt frá höfundi Hornstrendingabókar, sem nú mun vera í þann veginn að koma fyrir sjón- ir íslenzkra lesenda. Þá er ég hefi lesið bók, sem mér þykir nokkurs verð, eða heyrt get- ið einhvers rits, sem mér er sagt, að tals- vert sé í spunnið, þá fýsir mig jafnan að fá að heyra eitthvað um höfundinn, ef hann er mér ókunnur. Nú hygg ég, að þið, sem gluggið í Hornstrendingabók eða lesið hana, viljið gjarnan fá einhverja vitneskju um höfund hennar, og þar sem ég hefi um- gengizt hann svo að segja daglega í tólf ár, er mér ljúft að verða við beiðni vinar okk- ar, ritstjóra og útgefanda Kvöldvaknanna. Þórleifur Bjarnason er Hornstrendingur. Sunnan við Hornbjarg er Hornvík. Sunn- an hennar er Hælavíkurbjarg, og sunnan þess er Hælavík. Þar er Þórleifur fæddur hinn 30. janúar 1908, og þar ólst hann upp hjá móðurföður sínum, Guðna bónda Kjartanssyni, og konu hans, Hjálmfríði ís- leifsdóttur. Þau hjón bjuggu litlu búi og voru frekar fátæk, en Þórleifur var eina barnið á heimilinu, og þau unnu honum mjög og voru honum sérlega góð. Sérstak- lega var hann hændur að Guðna, afa sín- um, og fylgdi honum svo að segja hvert fótmál, þá er honum óx þroski. Hjálmfríður var kona ekki bókhneigð, en þó var hún ættfróð með afbrigðum og minnug. Guðni bóndi var aftur á móti mik- ill bókamaður og mjög fróðleiksfús. Hann kunni mikið af gömlum sögnum og vísum, og svo var hann vel að sér í íslendingasög- um, að hann gat sagt frá hverri þeirra í heild, atburðum öllum og mönnum, en suma kafla hafði hann lært orði til orðs. Hann vitnaði gjarnan í orð fornmanna, þá er hann átti viðræður við menn, og einnig í Vídalínspostillu, og þótti honum kenning meistara Jóns bragðmikil og hressandi. — Guðni var yfirleitt forn í máli og hugsun, dáði orðsnilld, hreysti og karlmennsku. Oft ræddi hann um skapferli fornmanna og þau atvik íslendingasagna, sem örlaga- þrungin virtust fyrir það fólk, sem þar var lýst. Mun Þórleifur strax í bernsku hafa feng- ið allgott tækifæri til að þroska meðfædda hæfileika sína til athugunar á þeim atrið- um lífsins, sem örlögum valda. Þórleifur var snemma látinn byrja að 19

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.