Nýjar kvöldvökur - 01.07.1949, Qupperneq 43
N.-KV.
BÆKUR
113
hann. Nonna-bækurnar lians eru og hafa
verið yndi og eftirlæti barna og unglinga í
fjöldamörgum löndum, og hér á landi eru
þær nú allar löngu uppseldar og lesnar til
agna.
Nú liefur Ísafoldarprentsmiðja hafið nýja
útgáfu á bókum Jóns Sveinssonar. Koma þar
fyrst út 6 bindi, er áður hafa prentuð verið
á fslenzku, en síðar a. m. k. 4 önnur og ef til
vill fleira. Samverkamaður Freysteins Gunn-
arssonar er Haraldur Hannesson og mun
hann þýða 2 af viðbótarbindunum, en Frey-
steinn hin.
Þetta fyrsta bindi flytur smásagnasafnið
,,Á Skipalóni“, er dregur heiti af fyrstu sög-
unni. Er óþarfi að ræða um það sérstaklega,
svo alkunnar sem bækur Jóns Sveinssonar
eru, en minna má þó á, að þótt þær séu eink-
um ritaðar fyrir börn og unglinga, eru þær
engu að síður Iiinn hugðnæmasti lestur öll-
um fullorðnum. Útgáfa þessi er snotur og
prýdd teikningum eftir Halldór Pétursson.
Tvær litmyndir eru í bókinni, ágæt mynd
af Skipalóni, en al' Möðruvöllum miklu lak-
ari. Þar átti ekki að taka nútímamynd, held-
ur af staðnum í tíð amtmannssetursins. En
þetta eru smámunir.
Kolbeinn Högnason: Kröjs. —
Reykjavík 1948. Isafoldarprent-
smiðja.
Þetta er finnnta kvæðabók Kolbeins
Högnásonar, og kom lnin út skömmu fyrir
andlát höf. í henni eru bæði löng kvæði og
stökur, þar á rneðal nokkrir samkveðlingar,
sumir í hálfkæringi. Varla er þess að r ænta,
að nýjar hliðar komi þar fram á skáldskap
Rolbeins. Hann yrkir sem fyrr náttúrulýs-
ingar, ádeilur, söguleg kvæði og lausavísur.
Kveðandi er góð og þróttmikið orðaval.
Mun mörgum þeim, er ann kveðskap í hin-
um gamla stíl, þykja fengur í kvæðum Kol-
beins, enda skipar ltann virðulegan sess með-
al alþýðuskálda vorra.
Stejdn Jónsson: Björt eru bernskn-
drin. Reykjavík 1949. ísafoldar-
prentsmiðja.
Stefán Jónsson er einn mikilvirkasti
barnabókahöfundur íslenzkur, og einnig
með þeim velvirkustu. Sögur lians liafa að
verðleikum hlotið vinsældir barna og ungl-
inga. Er það hvort tveggja, að hann kann fr;i
mörgu að segja, sem vekur áhuga ungling-
anna, og einnig að hann skilur hugsanaferil
þeirra og veit nákvæmlega, hvað það er, sem
þau fýsir að heyra um. í sögum hans kenntr
og margt fram, sem hlýtur að vekja umhugs-
un unglinga og víkka sjóndeiidarhring
þeirra. Björt eru bernskuárin eru 8 smásög-
ur liver með sínurn hætti, og segja frá börn-
um, æfintýrum þeirra, höppum og óhöpp-
um bæði í sveit og kaupstöðum. Verða þær
áreiðanlega jafnvinsælar og eldri bækur
höfundar. Bókin er prýdd mvndum eftir
Halldór Pétursson.
Frá rnörgu er að segja. Reykjavík
1948. ísafoldarprentsmiðja.
Þetta er nýstárleg bók að því leyti, að hún
er algerlega samin af börnum 11—13 ára að
aldri, eru það bæði frásagnir og teikningar.
Hafa kennararnir, Árni Þórðarson o<i Unn-
ur Briem, valið efnið úr úrlausnum barna í
Miðbæjarskólanum í Reykjavík. Gaman er
að lesa, hvað börnin hafa að segja. Mjög
mörg segja frá atvikum úr sumardvöl í sveit.
Önnur liafa ferðast til útlanda og kunna frá
ýmsu að segja þaðan, sum segja i'rá félags-
skap, er þau starfa í, eða lýsa Reykjavík, eða
jafnvel semja smásögur. Vitanlega er stíllinn
mismunandi, en samt sýna frásagnirnar all-
ar, að börnin bæði kunna að taka eltir og
skýra frá því, sem þau hugsa, sjá og hevra.
Teikningarnar ertt engu síður fjölbreyttar
og skemmtilegar.
O O
15