Nýjar kvöldvökur - 01.07.1949, Blaðsíða 54
XII.
AUGLÝSINGAR
N. Kv.
k
LESIÐ
íslendingasögurnar...
„Þar getur sá, er kann að hagnýta sér þær, margt gullkornið
funclið. Því það má með sanni segja, að í sögum vorum sé
fólginn einn liinn helzti andlegi fjársjóður þjóðarinnar.
Þær glæða tilfinnig fyrir fögru máli og búningsíþrótt, þær
vekja ást á frelsi, dug og drengskap og öðrum mannkostum,
en andstygð á áþján, lævísi og lítilmennsku.
Þær bregða upp fyrir oss hinum margbreyttustu myndum úr
félagslífinu. Þær sýna oss meðferð barnsins í vöggunni.
unglinginn temja sér íþróttir á leikvellinum, brúðhjónin í
veizlusalnum, bóndann við vinnuna, víkinginn á skeið sinni,
kappann á hólminum, dómarann og löggjafann á þinginu,
og soninn strengja þess heit við erfiölið, áður en liann dirf-
ist að setjast í hið auða öndvegi föður síns, að verða ekki
ættleri.
Þær sýna hve holl áhrif tíðir mannfundir og alls konar
skenrmtanir geta haft á félagslífið, og hve mikið táp, fjör
og atorka getur upp af því vaxið.
Er þá hægt að hugsa sér öllu hentugri og hollari bækur til
að svala fróðleiksþorsta uppvaxandi unglinga en þessar
sögur? Vér efumst unr það, þó þær séu auðvitað ekki ein-
hlítar sem menntameðal.
Mundu þær ekki betur en flest annað hvessa sjón unglings-
ins fyrir því, hve langt vér erum orðnir á eftir öðrum þjóð-
um frá því, sem var á söguöldinni, og lrvísla því í eyra lron-
um, að hann geti ekki kinnroðalaust sezt í sæti þessara for-
feðra sinna, nema hann strengi þess heit í hjarta sínu að
sýna sig sem verðugan niðja þeirra, en engan ættlera — eins
og sonurinn \ ið erfiöl föður síns forðum.“
Dr. Valtýr Guðmundsson.
Biðjið um
íslendingasögurnar ásamt Snorra eddu, Sæmundar eddu og Sturlunga
sögu í hinni þjóðkunnu útgáfu Bókaverzlunar Sigurðar Kristjánssonar,
Reykjavík. — Þær fást hjá bóksölum um land allt eða beint frá útgef-
anda burðargjaldsfrítt.
Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar, Reykjavík.