Nýjar kvöldvökur - 01.07.1949, Page 58
XVI.
AUGLÝSINGAR
N. Kv.
Margar góðar bækur frá ísafoldarprentsmiðju h.f.
Á pessu liausti koma frá ísafoldarprentsmiðju h.f. margar góðar bœkur,
sem munu gleðja bókamenn um land allt. — Meðal þeirra má nefna:
Bólu-Hjólmar, öll rit hans í fimm bindum. í 1. og 2. bindi eru kvæði hans öll, og
er þar engu sleppt, sem til hefur náðst, og ekkert niður fellt. í 3. bindi eru
Göngu-Hrólfs rímur. I 4. bd. aðrar rímur eftir Hjálmar, og í 5. bd. eru sagnir
Norræn söguljóð. Kvæðabálkurinn Friðþjófssaga eftir Tegner og Bóndinn eftir
Hovden, í snilldarþýðingu Matthíasar Jochumssonar.
Mataræði og heilsufar í fomöld, eftir dr. Skúla Guðjónsson, stórmerk bók, sem
verða mun handbók íslendinga á komandi árum. Bókin er upphaflega skrif-
uð á dönsku, en Ólafur Geirsson yfirlæknir á Vífilsstöðum hefur þýtt hana.
Rit Kristínar Sigfúsdóttur. Rit Kristínar öll munu koma í þrem bindum. í haust
kemur fyrsta bindið, en hin tvö eftir nýárið.
Sögur Isafoldar, 3. bindi. Sögur ísafildor hafa verið jólabókin tvö undanfarin ár,
og svo mun einnig verða að þessu sinni.
Dalalíf. I októbermánuði kemur fjórða og síðasta bindi Dalalífs. Sú bók hefur
vakið mesta athygli íslenzkra skáldsagna á síðari árum. Þetta síðasta
bindi ei lengst og líklega bezt.
Nonni og Manni og Sólskinsdagar, tvær næstu bækurnar af Nonnabókunum,
koma í haust. Nonnabækurnar eru sérstaklega hentugar jólagjafir handa
unglingum. Þær koma allar á næstu árum.
Æfisaga Breiðfirðings heitir bók eftir Jón Lárusson sjómann og bónda frá Breiða-
firði. Sú bók mun vekja athygli. Hann segir hispurslaust frá því, sem á
daga hans hefur drifið.
Eiðurinn, eftir Þorstein Erlíngsson. Fáar íslenzkar ljóðabækur hafa átt meiri og
almennri hylli að fagna en Eiðurinn eftir Þ. E. Bókin hefur verið lengi ófá-
anleg í bókaverzl., en kemur nú út í litlu, fallegu broti, fallega innbundin.
Islenzk-frönsk orðabók, eftir Gerard Boots. Þetta er fullkomin orðabók, um það
bil þriðjungi stærri en ensku orðabækur Geirs Zoega.
Það skeður svo margt skemmtilegt heitir næsta bamabókin eftir Stefán Jónsson.
Hver einasti unglingur á landinu þekkir Stefán Jónsson af Guttakvæðun-
um, Hjalta litla og öðrum bókum hans. Þessi bók mun verða jafnvinsæl.
Við Tröllaborg, sögurnar sem hún amma sagði í rökkrinu, heitir ný bamabók
eftir Loft Guðmundsson. Þessi æfintýri er nú verið að kvikmynda, og verður
í bókinni fjöldi mynda úr þeirri kvikmynd. Síðasta bók Lofts hét „Tveir
drengr í vegavinnu", og fór hún um landð eins og eldur í sinu.
Þella eru aðeins nokkrar af bókum ísafoldarprentsmiðju i haust, en marg-
ar eru áður komnar, t. d. Ferðaminningar Sveinbjarnar Egilson, A sjó og
landi, Á hvalveiðistöðvum, Á kafbátaveiðum, Eyrarvatns Anna o. fl.
Bókaverzlun ísafoldar.