Nýjar kvöldvökur - 01.07.1949, Side 60
Nýjusfu HJARTAÁSBÆKURNAR
ÁSTIR KLEOPÖTRU,
eítir Rider-Haggard. Þessi dásamlega iýsing á ástum Charmionu,
Harmakis og Kleopötru verður lesendum ógleymanleg.
TÝNDI HELLIRINN og FLÓTTINN FRÁ PARÍS,
eftir íslenzka höfundinn Val Vestan, eru bráðskemmtilega skrifaðar
spæjarasögur.
SÁL FALLBYSSANNA
er eftir hinn góðkunna norska höfund Övre Richter-Frich, sem er kunn-
astur fyrir sögurnar um lónas Field. Þessi spennandi saga er um lörgen
Bratt, hetjuna miklu, og gerist í fyrrí heimsstyrjöldinni.
BANKARÁNIÐ,
eftir Leslie Charteris, er nýjasta sagan, sem út hefir komið á íslenzku
um „Dýrlinginn" Símon Teihplar, ævintýramanninn fífldjarfa, sem
hrifsar ránsfenginn úr höndum glæpamannanna og gabbar lögregí-
una. — Þeir, sem hafa lesið fyrri sögurnar um „Dýrlinginn", mega
ekki missa af þessari bók.
LÍFIÐ AÐ VEÐI
er amerísk skáldsaga, sem hefir hlotið óvenjulega miklar vinsældir,
enda á hún þær fyllilega skilið. Inn í söguna er ofið spennandi ástar-
ævintýrum, og munu lesendur áreiðanlega telja það kost en ekki löst
á sögunni.
HNEF ALEIK ARINN
er ein af skemmtilegustu sögum skáldsagnasnillingsins Jack Londons.
Sagan er í senn unaðsleg ástarsaga og viðburðarík baráttusaga ungr-
ar hnefaleikahetju.
LEYNDARDÓMUR FRUMSKÓGANNA
segir frá hinum furðulegustu ævintýrum tveggja enskra ofurhuga og
förunauta þeirra inn í myrkviðum Afríku.
HJARTAÁSINN kemur út mánaðarlega. í hverju hef'ti eru úrvals-
smásögur og skemmtilegar og fræðandi greinar. Sagnaþættir eftir Kristínu
Sigfúsdóttur og Óskar Clausen, o. fl. Ljóðbrot og lausavísur. Kvikmynda-
þáttur. Draumaráðningar. Söngtextar. Framlialdssaga, o. m. fl.
HJARTAÁSINN er tímarit allra á heimilinu.
Hjartaásútgáfan.