Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 18

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 18
8 ENDURMINNINGAR KRISTJANS S. SIGURÐSSONAR N. Kv. Var hann aldrei ánægður, nema hann væri viss um að hafa nóg hey handa skepnum sínum, hvernig sem veturinn lcynni að verða. Eftir áfall þetta náði faðir rninn aldrei fullri heilsu. Hann gat þó hirt skepn- ur sínar sjálfur næsta vetur með hjálp elztu sona sinna. En ekki mun honum hafa veitzt létt að skríða um hey og tóttardyr, eins og hann þá var bilaður í bakinu. Næsta sumar gengu mislingar, og bárust þeir til okkar um liásláttinn. Veiktumst við börnin öll og lágum öll í einu. Man ég vel eftir þeim tíma. Sjálfur lá ég ekki nema tvo daga, en sum hinna lágu í hálfan mán- um. Aðkomufólk var þá ekki annað á heim- ilinu en ein vinnukona. Faðir minn var því oftast einn við heyskapinn, þar sem móðir mín gat litlu sinnt öðru en sjúklingunum, og varð því vinnukonan að gera öll önnur verk í bænum, svo sem að mjólka kýr og ær, strokka mjólkina og gera skyr og elda ínatinn. Tafði allt þetta mjög fyrir hey- skapnum. Nú leið eitt ár forfallalaust. Tíðarfar var sæmilegt og heilsufar gott. Og enn ríkti friður og ánægja á heimilinu. Á Jrví ári fæddist sjöunda barnið, og vorum við nú orðnir fimm bræður og tvær systur. Allt voru þetta mannvænleg börn, og var til þess tekið af kunnugu fólki, hve lieimilislífið þar var ánægjulegt og gott. Ennþá skorti ekkert á, að börnunum gæti liðið vel, og að þau fengju gott uppeldi. Þó hafði búið dreg- ist ögn saman við áfall það, sem faðir minn fékk fyrir tveimur árum, enda liafði hann ekki náð sér til fulls eftir það slys. Og nú fór hann að verða gigtveikur, og eftir það skildi gigtin aldrei við hann. En svo kom barnaveikin. Það var um há- vetur, og veiktust öll börnin. Voru það erfiðir dagar fyrir foreldra okkar að þurfa að vaka yfir sjö sjúklingum daga og nætur, enda veiktist móðir mín líka. Hvort það hefur verið barnaveiki, veit ég ekki. En .sennilega hefur Jrað verið þreyta. Eg man eftir því, að eg lá fyrir ofan hana í rúminu og þótti ósköp vænt um, að hún skyldi ekki JjLu fa að fara frá mér. Hjálp var hvergi að fá. Allir forðuðust heimilið af hræðslu við veikina, nemá Jón gamli á Jarlsstöðum, sem áður er getið. Hann var sífellt á ferðinni með belladonna og aðra dropa sína. Taldi hann ekki eftir sér ferðirnar á milli bæj- anna, og mun hann ekki hafa tekið mikið fyrir öll þau hlaup sín og meðul. Var hann einn þeirra manna, sem æfinlega var reiðu- búinn að hjálpa Jaeim, sem hjálparjrurfar voru, og án þess að meta það til launa. Sum börnin komust fremur létt út úr veikindum þessum, en önnur verr. Þá dó Arnfríður, eldri systir mín, og mun hún þá hafa verið 5—6 ára. Eg lá lengst okkar systkina, og var lengi tvísýnt um líf mitt. Loksins komst eg þó á fætur, en þá var eg sama sem blindur. Ofurlitla glóru sá eg þó, rétt aðeins svo, að eg rataði um bæinn. Mér er minnisstætt það myrkur. Eg heimtaði alltaf ljós. Þá var ekki um önnur ljóstæki að ræða en tólgarkerti í baðstofu, en lýsis- kollur frammi í bænum. Og þó að kveikt væri á þessu, var alltaf sama myrkrið, og að lokum skildist mér það, að eg yrði að sætta mig við myrkrið. Ekki man eg, hve lengi þetta varaði. En sem betur fór, tók sjónin smátt og smátt að skýrast. Pabbi átti gleraugu, sem liann notaði við lestur. Einu sinni náði eg í þau og setti þau upp, tók bók og fór að rýna í hana. En mikil varð sú gleði á heimilinu, þegar eg kom hlaupandi til pabba og segi hon- um, að ég sé farinn að sjá. Og eg benti hon- um á, að þarna sæi eg línurnar, og þarna væri autt bil á milli þeirra. Mest hefur þó gleðin sennilega verið hjá sjálfum mér, því að eg Jmrfti að fara með bókina til allra og sýna Jreim línurnar og auðu bilin. Eftir nokkra daga fór eg að sjá stafina, og um sumarið var eg búinn að fá nokkurn veg- inn fulla sjón. Eg náði þó aldre.i þeirri sjónskerpu, sem eg hafði áður. Og eftir því,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.