Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 45

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 45
N. Kv. ÞAÐ, SEM ALDREI VERÐUR ENDURHEIMT 35 Bendham var hár maður vexti og grann- ur, með íagurskapað höfuð, dökkt hár, hrokkið, en tekið að grána. Hörund hans var gulbrúnt á lit, og hafði verið óbreytan- legt þannig, síðan hann var tæplega hálf- fertugur, sökum hitabeltis-sjúkdóma og langdvala í megnu og sterku sólskini hita- beltislanda. Hann var magur og seigur, með ótvírætt mótstöðuafl, vel vaxinn og nettmenni, en virtist nú um of taugaveikl- aður, en jafnframt of jafnvægur, með fullt vald á sjálfum sér og tilfinningum sínum, einn þessara manna, sem af eðlishvöt og löngum vana lætur aldrei í ljós tilfinning- ar sínar, heldur byrgir sig inni í eigin sál. Nóttin var kyrr, en þó ekki hljóð. Hvergi heyrðust mannleg hljóð eða raddir, heldur miiljónir hljóða sjálfrar náttúrunnar — ein- róma suða og hvinur skordýranna, gjálp fljótsins og dauf högg öðru hvoru, er trjá- bútur á reki rakst á skipssúðina. Stöku sinnum heyrðist öskur í parda handan úr kjarrskóginum, og nær samtímis kvað við skrækur einhvers apa. Bendham varð átak- anlega var algerlega frumstæðrar veraldar umhverfis sig, þar sem krökkt var af skríð- andi, klifrandi, fljúgandi og syndandi líf- verum — frumstæðs heims, þar sem upphaf og endir var aðeins að éta, sofa, tímgast og og reyna að forðast dauðann, — heimur, hugsaði hann með einkennilegri hugfró, sem þrátt fyrir alla villimennsku og alls konar ódæli væri þó einfaldur og blátt áfram. Einu sinni hafði hann sjálfur verið öllu þessu nákunnugur. Hann liafði sjálfur lif- að þessu lífi. Og nú spurði hann sjálfan sig, hvort og hvers vegna það ætti að vera ógerningur að endurheimta það? Tólf ár væru þó engin eilífð. Nú voru sem sé tólf ár liðin, síðan hann hélt heim aftur til Bretlands sem ríkur maður, og á þessum tólf árum hafði hann auðgazt meir og meir með ári hverju, og líf hans — þótt skringilegt sé — með hverju ári orðið æ óbærilegra og ófullnægjandi að honum virtist. Hann gat ekki gert sér grein fyrir, hvernig því væri farið, að auðurinn skyldi ekki hafa gert það auðvelt og ein- falt. Öll tilvera hans hafði aftur á móti stöðugt orðið honum æ óbærilegri, og er hann loksins gat ekki þolað þetta lengur, 'hafði hann lagt af stað og farið aftur þang- að, sem hann hafði háð æskubaráttu sína og unnið sigur og auð, áður en hann var orðinn þrjátíu og sex ára að aldri. Þessi frumstæði heimur var enn óbreytt- ur. Hér var hann á ný kominn inn í hann miðjan. Hann hafði ferðazt umhverfis hálf- an hnöttinn til að friða og iullnægja hinni sjúklegu heimþrá sinni, en hafði þó ekki tekizt að finna réttu leiðina til baka. Það var sem lægi hún langt úrleiðis og gæfi honum meinlegt liornauga. Einhvers staðar utanslóðar liafði hann flækzt í verðbréfum og arðmiðum og ábyrgðum og þingum og fundarhöldum og ráðstefnum í allt öðrum heimi. Honum fannst allt í einu, að hann væri alveg að kafna, og að eina úrlausnin væri að finna aftur sjálfan sig aleinan í íshelli, þar sem væri engin önnur lífvera en hann sjálfur. Gæti hann orðið aleinn á ný, aleinn í heimi, án alls annars en heilbrigði sinnar og hugarþreks, eins og liann hefði verið á tvítugsaldri, þá myndi honum ef til vill takast að endurheimta það, sem nú væri honum algerlega horfið — þetta eitthvað — hann gat ekki sagt né skilgreint, hvað það hefði verið, sem þá hefði gert hann svo hugrakkan og stefnufastan. Og í sama vetfangi fór um hann eins konar kuldahrollur, en það var hrollur af því tagi, sem var honum algerlega nýtt fyrirbrigði, þrátt fyrir langa reynslu lians af ýmiss konar hitaveiki. Hann hellti aft- ur í glasið, óblandað viskí að þessu sinni, og varð aftur var við hvin skordýranna fyr- ir utan tjaldið. Hann virtist fylla allan 5*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.