Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Síða 23

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Síða 23
N. Kv. ENDURMINNINGAR KRISTJÁNS S. SIGURÐSSONAR 13 leiddist mér það ákaflega. Enda voru það mikil umskipti fyrir 10 ára dreng að koma tir systkinahóp ög ærslum og setjast að hjá nokkrum rollum uppi á heiði. Enda mun ég hafa farið skælandi með ánum flesta morgnana. Einu sinni man eg eftir því, að eg fékk heimsókn í hjásetunni. Eg var þá með ærnar í brekkunum nokkuð fyrir ofan göt- urnar, sem liggja þar á milli Hrappsstaða og Jarlsstaða. Sé eg þá, hvar kona kemur ríðandi sunnan göturnar ,og ríður hún út úr götunni og upp í brekkuna. Sá eg þá, að þetta var Helga, gæðakonan á Hlðarenda, vinkona móður minnar. Kemur hún til mín, sezt hjá mér og spjallar lengi við mig. Mun hún hafa séð, hvað mér leið, því að allur mun eg hafa verið grátbólginn, eins og vant var flesta daga. Ekki man eg eftir, að hún spyrði mig, hvort mér leiddist. En luin sýndi mér ýmislegt, sem ég gæti haft mér til dundurs og dægrastyttingar, svo sem að búa til festar úr puntstráum, marka lauf- blöð, rífa gráviðartágur, flysja þær og flétta úr þeim körfur og liöft. Þó að eg hefði þá ekki mikla þörf fyrir þetta, hafði eg seinna mikið gagn af þessari kunnáttu minni. Helga mun hafa komið við heima hjá mér í leiðinni og sagt, hvernig mér liði, því að daginn eftir kom faðir minn og sótti mig. Var eg þá búinn að vera þarna f fimm vik- ur, og var mér seinna sagt, að eg hefði verið orðinn svo horaður, að eg hefði varla ver- ið þekkjanlegur. Mun það eingöngu hafa verið sökum óyndis, því að mat hafði eg meiri en eg gat í mig látið. Þegar eg kom heim aftur, var mér sýnd hin nýja systir, sem fæðst hafði í fjarveru rninni. Þótti mér það ánægjulegt að eiga nú aftur tvær systur, því að eg vissi ekki til að neitt slíkt væri í vændum. Nú tók að syrta í lofti fyrir alvöru. Faðir minn var orðinn mjög gigtveikur. Hafði gigt hlaupið í bakið á honum, í gamla meiðslið. Og nú var móðir mín orðin heilsulaus, og ómegðin allmikil, þar sem 7 börnum Var að framfleyta. Ofan á þetta bættist svo, að föður nrmum var sagt upp jarðnæðinu Kálfborgará, sem hann hafði búið á svo lengi og tekið við eftir föður sinn. Jón á Arndísarstöðum átti jörðina, og nú þurfti Sören sonur hans að fá hana. Þurfti því faðir minn að fara að leita eftir öðru jarðnæði. En hver einasta jörð í Bárðardal var þá setin, svo að ekki tjáaði að reyna þar. Þá bjó að Úlfsbæ í Bárðardal Kristján Jónsson. Hann var hreppstjóri og umboðs- rnaður landssjóðsjarða. Bauð hann pabba hálfan Hjalla í Reykjadal. Var ekki annars úrkostur en að taka því boði, þótt báðum foreldrum mínum væri það nauðugt að flytja í tvíbýli. Mér eru enn minnisstæðir flutningarnir þangað um vorið. Þótt komnir væri fardag- ar, var enn ekki orðið snjólaust á heiðum, og var því versta ófærð. Voru margir hestar fengnir að láni, og öll búslóðin síðan bund- in í klyfjar og flutt á klökkum. Urðum við eldri drengirnir að ganga, og það gerði faðir minn líka. Móðir mín var ríðandi, enda var hún enn mjög lasin, og reiddi hún yngsta barnið, sem þá var tæplega ársgam- alt. Tvö næstyngstu börnin voru látin tví- menna á einum hestinum. Var síðan lagt af stað upp á heiði og öslað þar f krapi og á vegleysum út í Skógarsel í Seljadal. Þar bjó þá Friðrik föðurbróðir minn. Töfðum við þar um hríð og hvíldunr okkur vel. Síð- an fórum við þvert yfir Daðastaðaháls og komum að Hjalla um kvöldið. (Framhald.) BÓKAFREGN. Tvær nýjar skáldsögur eftir liina vinsælu norsku skáldkonu, Margit Ravn, eru nú að koma út á íslenzku. Heita þær Ung stúlka d réttri leið og Systurnar í Litluvik.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.