Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 28
N.-KV. Paul Deutchman. Þetta skeði í neðanjarðar-iestinni (/ RiEADER’S DIGEST, júni 1949) Helgi Valtýsson þýddi. Til eru tvær ólíkar skýringar á því, sem kom fyrir Marcel Sternberger, fæddan Ung- verja, er hann fór með neðanjarðarlestinni síðdegis þann 10. janúar í fyrra (1948). Sumir munu segja, að hin skyndilega á- kvörðun Sternbergers að fara og heimsækja veikan vin sinn og hin óslitna rás furðulegra viðburða, er af því leiddi, hafi aðeins verið tilviljun ein um röð samtímis atburða. Aðrir muna aftur á móti í viðburðum þess- um sjá handleiðslu guðlegrar forsjónar í öllu því, er bar við þennan dag. — En hverjar sem skýringarnar verða, og á hvern veg sem þær falla, þá er sagan raunverulega á þessa leið: Marcel Sternberger er ljósmyndari að iðn, og árurn saman hefur hann undantekningar- laust fylgt þeirri reglu að fara burt að heim- an frá sér í útjaðri New-Yorkborgar til vinnustofu sinnar, sem er inni í miðri borg- inni. Hann er afar vanafastur maður og reglusamur, nær fimmtugur að aldri, með hrokkið hár nærri hvítt, drengilegur á svip og brúneygður, mjög hrifinn af þjóðdönsum ættlands síns, Ungverjalands, og hann fer á hverjum morgni með 9.09-lestinni inn til borgarinnar. Morguninn þann 10. janúar steig hann að vanda upp í 9.09. En allt í einu snýst hon- um hugur, og hann ákveður að fara og vita um ungverskan vin sinn, Laszlo Victor, sem átti heima í Brooklyn og lá veikur um þess- ar mundir. „Eg veit ekkert, hvernig því var farið, að eg ásetti mér allt í einu að vitja hans þennan morgun,“ sagði Sternberger við mig nokkr- um vikum seinna. „Eg hefði allt eins vel getað gert það eftir vinnutíma. En eftir að mér datt þetta í hug, hvarf mér ekki úr liuga, að þetta mundi hressa hann tölu- vert og gleðja.“ Þetta varð til þess, að á næsta viðkomu- stað fór Sternberger yfir j neðanjarðar-lest- ina til Brooklyn, gekk því næst heim til vinar síns og dvaldi þar fram að nónsleyti. Síðan fór hann upp í neðanjarðar-lest þá, er áætlun hafði til miðrar New-Yorkborgar, og hélt áleiðis til vinnustofu sinnar. „Vagninn var troðffullur, er eg kom upp í hann," sagði Sternberger mér, „og hvergi virtist vera von um sæti. En er eg var rétt kominn inn í vagninn, stökk skyndilega upp maður, er sat rétt við dyrnar, og þaut út á síðustu stundu, og náði eg þegar í laust sæti hans.“ „Eg hef átt heima í New York nægilega lengi til þess að hafa vanið mig af þeim við- sjárverða ávana að hefja þegar samræður við ókunnuga, er eg rekst á af tilviljun. En þar sem eg er ljósmyndari, hefur það orðið mér að sérkennilegum vana að virða fyrir mér andlit ferðamanna minna. Og nú varð eg nærri forviða, er eg athugaði svip farþega þess, er sat á vinstri hönd mér í vagninum. Hann var á að gizka á þrítugs- aldri, og augnaráð hans virtist lýsa sársauka og djúpri sorg. Hann var að lesa í ung- versku blaði, og ósjálfrátt varð mér á að snúa mér að honum og segja á ungversku: „Eg vona, að þér misvirðið ekki, þótt eg líti á blaðið yðar.“ „Maðurinn virtist verða forviða á því að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.