Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 48
38 ÞAÐ, SEM ALDREI VERÐUR ENDURHEIMT N. Kv. Fótatakið nálgaðist óðum litla tjaldbyrg- ið, og síðan var tjaldskörinni ly£t snöggt upp með æfðri hendi þess, sem lengi hefur lifað í hitabeltunum, og í daufri lampa- glætunni varð hann nú var mannlegrar veru í alhvítum línklæðum. Hún var í Jodhpurs úr líni og í línjakka og með hjálm á höfði með slæðu fyrir andliti til varnar gegn flugunum. En þrátt fyrir búninginn var þetta ekki karlmaður. Þetta var kona, bústin og um- fangsmikil og dyrgjuleg og jafnvel feit. Undir jakkanum gat hann greint lögun þungra og svellandi brjósta hennar. Með ótvíræðri kvenlegri hreyfingu var hönd lyft og slæðunni þeytt frá andlitinu, og honum kom hreyfingin svo einkenni- lega kunnuglega fyrir sjónir. Það var ókleift að greina andlitsdrætti í þessari skímu, en nú var sagt: „Halló, Jim,“ og skyndilega hætti heimurinn að vera raun- verulegur. Honum varð afskaplega illt. Því var eins farið um hreim raddarinn- ar og fótatakið og hrævareldinn, að það kippti honum áratugi til baka, og það var sem einhver alókunnugur segði: „Tína, í guðanna bænurn!" Og í nær sama vetfangi var hann alveg viss um, að annaðhvort væri hann orðirm brjálaður eða þá algerlega ofurölvaður og frá sér. Þessi spikfeita, klunnalega kona gæti ekki verið Tína. Samt var það rödd Tínu, sem svaraði honum: „Eg dvaldi hjá landshöfðingjanum. Svo frétti eg, að þú værir kominn." Þetta var hlý og hljómbyrgð rödd með örlitlum erlendum hreim, sem þó hvorki var hollenzka né frakkneska né rússncska. í öllum heimi var engin önnur rödd þess- ari lík. Hún talaði blátt áfram og hvers- dagslega, eins og hefðu þau hitzt síðast í gær í staðinn fyrir tólf árum. Og í einu andartaki endurlifði hann heilan áratug ævi sinnar, sem nú var liðinn að eilífu í aldanna skaut og kæmi aldrei aftur — nætur á íljótinu, í Grand Hótel du Cap í Singapore, á Sumatra og nætur um borð í gömlu skonnortunni Artemis, sem fyrir langa-löngu var veðruð og blásin á kóralrifi eyjar einnar tæpar 100 mílur þaðan, sem hann sat núna. Hann heyrði hana segja: „Viltu ekki bjóða mér eitthvað að drekka?’1 og hann áttaði sig þegar. Hann skrúfaði upp í lamp- anum og virti hana þögull fyrir sér um langa liríð. Hann sá, hve hún var orðin af- skaplega feit og digur. Hinar yndislegu bungur og beygjur líkamans höfðu blásið upp og tútnað út í eintóma jafnbola dig- urð. Andlitið var þrútið og uppblásið og illa málað. Og munaðlegur munnurinn var orðinn vanskapaður og ólögulegur á allan hátt. Hún brosti napurt til hans, og sást þá í tvær gulltennur, sem hann kann- aðist ekkert við. Aðeins augun voru óbreytt enn, æsandi fögur og töfrandi. Sem allra snöggvast fann hann bregða fyrir hlýju af eldi þeim, sem eitt sinn hafði nærri brennt hann upp til agna. En sá hiti var ekki af völdum þessarar konu, heldur augna hennar og hinnar hlýju, hljóm- byrgðu raddir hennar og vegna einhverr- ar endurminninga — endurminninga um Albertínu Robb, hollenzka, rússneska og frakkneska að nokkru leyti, en að áttungi Malaji. — Og nú var það Malajinn, sem að lokum hefði numið líkama hennar. „Dvaldi hjá landshöfðingjanum." Hon- um var Ijóst, hvað í því fólst, og hann þekkti landshöfðingjann, feitan og sóða- legan Portúgala, grænan á liörund. Hún virtist ekkert taka nærri sér né illa upp þessa nánu athygli hans. Hún leit bros- andi á hann. „Já, eg hef breytzt nokkuð,” og hún kveikti sér í vindlingi með malaja- kæruleysi. „En það hefur þú líka gert. Þannig er lífið.“ Hann spurði mjög hversdagslega og eins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.