Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 34

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Blaðsíða 34
24 ÞRIR HERMENN N. Kv. aðist býlið. Lítill bjálkakofi og gömul hlaða voru hér að brenna upp til agna í áköfum, reyklausum eldi. Skyndilega varð eg þess var, að þarna var samt lifandi mannvera. Á kofahlaðinu skammt frá brunninum sat gömul kona. Stálhjálmur og blikk-kanna lágu við hliðina á henni. Hún hafði auð- sjáanlega verið að reyna að slökkva eldinn, en gefizt upp við það. Nú sat hún þarna, flötum beinum, hreyfingarlaus á jörðinni. Andlit hennar var tómt og sviplaust, augna- ráðið sljótt. Eg reyndi að yrða á hana. Eg sagði henni, að hún mætti ekki sitja hérna á þennan hátt. Það gæti kviknað í fötum hennar af neistum frá bálinu. Hún svaraði mér engu, en strauk hendi, þunnri og slit- inni, niður eftir pilsi sínu. Eg gekk með vatnsfötu að brennandi kof- anum, en þar var um enga björgun að ræða. Þá varð eg þess var, hvað þessum megna þef olli. Húsin bæði voru þjappfull af líkum þýzkra hermanna. Sum þeirra höfðu enn stálhjálma sína á höfði. Þeir voru nú eld- rauðir og glóandi. Sum andlitin virtust glotta út úr eldslogunum. Eg fór aftur til gömlu konunnar og hellti yfir hana dálitlu af köldu vatni. Virtist það hressa hana ofurlítið. Daufurn svipbrigðum brá fyrir á andliti liennar og sljóleiki og deyfð hvarf að nokkru leyti úr augnaráði hennar. „Drottinn minn góður,“ tautaði hún. Eg reisti liana á fætur og studdi hana ofan á grundina fyrir neðan bæinn. Hún skjögraði og var reikul í spori, en hélt samt jafnvægi og spjallaði ofurlítið. Hún hefði búið hérna í kotinu með tveimur sonum sínum. Óðar er þeir fréttu af stríðinu, náðu þeir í áætlunarbíl, sem fór suðureftir og ofan í dalinn, og síðan hefði hún ekkert af þeim frétt. Hún hafði verið þar alein þangað til í fyrradag. Þá hefðu nokkrir norskir hermenn farið hér framhjá. Þeir hefðu sagt henni, að hér myndi verða allmikil átök og skothríð, og væri því bezt fyrir hana að forða sér upp í fjöllin. Henni fannst samt sem áður, að hún væri orðin of gömul til þess að flýja á fjöll og skóga, en hún sleppti kúnum og geitunum og lét þær rása burt eftir skógunum. I gær hefði verið skothríð allan daginn eftir dalnum endi- löngum, en hún hefði engan hermann séð fyrr en seint um kvöldið. Þá komu nokkrir þýzkir hermenn með fullar kerrur af líkum og höfðu hrúgað þeim inn í kofann og inn á heyið í hlöðunni og kveikt síðan í öllu saman. Hún hafði reynt að slökkva eldinn, og er hermennirnir öftruðu því, skvetti hún vatninu á þá. En þeir hefðu aðeins hlegið að henni og tekið hjálm eins hinna föllnu hermanna og þrýst honum ofan á höfuðið á henni, svo að hún gat ekkert séð. Þegar húsin voru orðin alelda, hurfu hermenn- irnir á brott. Eg reyndi að telja um fyrir gömlu kon- unni og fá hana til að fara með mér, en hún spurði aðeins, hvert hún gæti svo sem far- ið. Varð eg síðan að yfirgefa hana og bjarga sjálfum mér áleiðis austur um skógana. Ef til vill var þetta ekki mikill viðburður né merkilegur. Þjóðverjar höfðu lagt í eyði 'og útmáð borg eftir borg. Þeir höfðu brennt og rænt og ruplað allt liéraðið. En þetta litla, fátæka kot, sem hér hafði verið breytt í andstyggilega líkbrennslu, og þessi von- snauða og heimilislausa gamla kona rumsk- uðu svo einkennilega við mér og vöktu mig. Mér varð það allt í einu brýn persónuleg nauðsyn að koma hingað aftur í þessa skóga og berjast á ný. — Eg veit ekki, hvort þið skiljið mig eða ekki. En þetta eru nú mínar tilfinningar og viðhorf í þessu máli.“ ,,Eg skil þetta fullkomlega, og mínar til- finningar eru á sama veg,“ sagði þreklegi pilturinn ljóshærði úr Þrændalögum. Mál- far hans og mállýska var breitt og traust og fyllti litla herbergið. Við höfðum engin ljóstæki, en auglýsinga-lýsing á Jjakhúsi fyr- ir utan varpaði ljósgeislum inn urn glugg- ann til okkar öðru hvoru. Pilturinn lækk- aði róminn, er hann hélt áfram máli sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.