Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 39

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1950, Qupperneq 39
N. Kv. BÆKUR 29 mönnum, sem stund leggja á íslenzkt mál og menningu. Eiga útgefendur þakkir skildar fyrir að hafa svo myndarlega á loft haldið menningu hins stórbrotna skálds. Steind. Steindórsson. SAGA ÍSLENDINGA. VII. bd. Rvík 1950. Áfram sígur það hægt og hægt hið mikla verk um sögu Islendinga, er Menningar- sjóður kostar. Nú fyrir skemmstu er fjórða bindið komið á markaðinn og er því ætlað að vera hið 7. í röðinni. Bindi þetta fjall- ar um tímabilið 1770—1830, en höfundur er Þorkell Jóhannesson prófessor. Tímabil þetta er á marga lund hið merki- legasta og merkilegt til fróðleiks. Svo má telja, að naumast hafi þjóðarhagir verið verr á vegi staddir nokkru sinni í allri sögu landsins, en jafnframt tekur þá að rofa til um viðreisn landsins. Stjórnarvöldin er tek- ið að óra fyrir því, að eitthvað verði að gera landinu til viðreisnar, og þótt margar til- raunir þeirra reyndust fálmkenndar, var þó á einu sviði unnið verulegt átak, er rýmkað var um verzlunarhöftin. Á þessu tímabili dundu yfir hörmungar Móður- harðindanna, og sýnir raunar fátt betur seiglu og viðnámsþrótt þjóðarinnar, en að þau ásamt drepsótt skyldu ekki ríða henni að fullu. En jafnframt því sem rofar til í stjórnar- fari, hefst einnig viðreisn í menntalífi þjóðarinnar. Magnús Stephensen rekur hið ötula fræðslustarf sitt, Bókmenntafélagið er stofnað, og ný skáld koma fram, svo að eitt- hvað sé nefnt. En jafnframt gerist hið merkilega ævintýri Jörundar hundadaga- konungs, sem liér er sýnt í nýju ljósi. Þorkell prófessor segir vel frá og skemmti- lega. Tekst honum furðu vel að segja mikla sögu og merkilega í takmörkuðu rúmi. En þó hygg ég, að mörgum fari sem mér, að þeim þyki bókin of stutt. Hún vekur ótal spurningar í huga þeirra, einkum um hið innra líf þjóðarinnar, daglegt líf og annað er það snerti, og marga mundi einnig fýsa að kynnast nánar ýmsum þeim ágætismönn- um ,sem frá er sagt. Allmargar myndir pýða bókina. Saga ís- lendinga er ritverk, sem enginn íslendingur getur látið hjá líða að lesa og eiga. Hún er lykillinn að skilningi vorum á þjóð vorri, lífi hennar og viðhorfum. Og hún er oss nútímamönnum í senn viðvörun og hvatn- ing í starfi voru. Þetta síðasta bindi er urn margt hið skemmtilegasta, sem enn er út komið, og það hlýtur að vekja þá ósk, að höfundi þess megi auðnast að skrifa sem mest af þeim hluta sögunnar, sem enn er óskráður. Steind. Steindórsson. Þorsteinn Erlingsson: EIÐUR- INN. - Rvík 1949. Útgefandi ísafoldarprentsmiðja. Fyrir síðustu jól sendi ísafold 4. útgáfu Eiðsins á markaðinn, í fallegri og smekk- legri útgáfu, er hæfir hinum fögru og vin- sælu ljóðum. Eiðinn þarf ekki að kynna þjóðinni. Allir, sem ljóðum unna, vita að þar eru mörg hin ljúfustu ástaljóð, sem til eru á íslenzka tungu. Og ánægjulegt er að handleika hina nýju og fögru útgáfu, og gott til þess að vita, að ljóð þessi skuli enn á ný vera á bókamarkaðinum. Steind. Steindórsson. Skúli V. Guðjónsson: MANN- ELDI OG HEILSUFAR I FORNÖLD. — Rvík. Útg. ísa- foldarprentsmiðja. Þegar vér lesum venjuleg sagnfræðirit, fer oftast svo, að vér söknum þar margra þátta, sem oss annars fýsti að vita. Þótt sagan fræði oss um stjórnmálaflækjur, deilu- mál höfðingja, almennan þjóðarhag og

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.