Nýjar kvöldvökur - 01.05.1960, Side 22
76
ÍSLENZKIR ÆTTSTUÐLAR
N. Kv.
Einari Björnssyni þann vitnisburð, að hann
hafi af föður sínum og móður og þeim
mönnum öðrum, sem aldur hans vissu, sagð-
ur hafa verið 19 vetra þegar Guðmundur
Arason reið með mönnum sínum í Norð-
lendingafjórðung, en það var árið 1427.
Hefur Filippus því verið fæddur um 1408.
Þegar Sólveig sú dóttir Guðmundar Arason-
ar og Helgu Þorleifsdóttur, sem lifði þegar
Filippus gaf vitnisburð sinn, kona Bjarna
Þórarinssonar, fæddist, segist hann hafa ver-
ið 23 vetra.55)
22. ágúst 1489, í Haga á Barðaströnd, lýsir
Filippus yfir því, að hann hafi gefið Dýr-
finnu Gísladóttur, sonardóttur sinni, 10
Itundruð í skógarpartinum í Botni í Patreks-
firði, og hafi kona hans, Gróa Ketilsdóttir,
og synir þeirra, Gísli og Loftur, samþykkt
þágjöf.56)
xa. Loftur Filippusson.
Hans er fyrst getið í brúðkaupi Gísla
bróður síns á Hóli í Bíldudal 7. febr. 1460,
er hann samþykkti gjöf foreldra sinna á hálf-
um Haga til Gísla.57)
30. nóv. 1471 er Loftur orðinn prestur,
og er hann þá vottur að því á Espihóli í Eyja-
firði, að Þorleifur Björnsson og Magnús
Benediktsson gerðu *samning með sér. Loft-
ur er þá eflaust í fylgd með Þorleifi. Bréfið
um samning þenna undirritar séra Loftur á
Sjávarborg í Skagafirði 9. janúar 1472.58)
18. s. m. er hann vottur á Hólum í Hjalta-
dal.59) Daginn áður, 17. s. m., er hann vott-
ur að því á Meirum-Ökrum í Skagafirði, að
Kristín Þorsteinsdóttir gaf Ingveldi Helga-
dóttur, dóttur sinni, fylgikonu Þorleifs
Björnssonar, tíundargjöf úr fé sínu, Sá gern-
ingur er undirritaður á Þingeyrum 11. febr.
s. á.60)
24. maí s. á. er síra Loftur í Haga og er þá
vottur að fyrrgreindum samningi Sigríðar
55) D. I. VI, bls. 435.
56) D. I. VI. bls. 678.
57) D. I. V, bls. 205-206.
58) D. I. V, bls. 671-672.
59) D. I. V, bls. 652.
60) D. I. V, bls. 656 og 658.
Þórðardóttur, frænku sinnar, við Gísla bróð-
ur sinn, og er vottorðið skráð í Vatnsfirði 22.
apríl 1473.61) Á því ári tók síra Loftur við
Gufudalsstað, og afhentu erfingjar síra
Helga Þorkelssonar muni kirkjunnar eftir
skrá, sem enn er til í frumriti.62) 28. ágúst
s. á. er síra Loftur ásamt fleirum í skoðunar-
gerð í Vatnsfirði, er Stefán biskup vísiteraði
þar.63)
Árið 1479 afhenti Loftur Gufudalsstað,
en síra Þorsteinn Þórarinsson tók við. Enn
er til frumrit af skránni yfir afhendinguna,
og gaf Loftur þá eða lúkti kirkjunni þetta:
,,. . . sancte Johannis líkneski baptiste, tvær
koparstikur og tvær altarisbrýn fyrir ij
hundruð og tvær klukkur fyrir fjögur
hundruð. Skyldi allir þessir peningar, brýn
og stikur vera ævinleg eign kirkjunnar í
Gufudal.“64)
í dómi síra Eyjólfs prófasts Sigurðssonar,
sem gekk undir Múla í Skálmarnesi 10.
ágúst 1484, segir, að síra I.oftur Filippusson
hafi á sínum tíma tekið vitnisburði um eign-
arhald á jörðinni Selsker í Múlakirkju-
sókn.65)
Líklega hefur Loftur tekið Selárdal strax
þegar hann fór frá Gufudal, en þar er hann
1495, svo sem síðar getur, og síðan til ævi-
loka. Hans er getið á Hrafnseyri 30. júlí
1481, er þau gerðu helmingafélag með sér
Jón danur Björnsson og kona hans Kristín
Surnarl iðadóttir.6 6)
6. október 1483 er síra Loftur í Skálholti
og er þá vottur að því í biskupsstofunni, að
Gísli bróðir hans, mágur Magnúsar biskups,
gefur Dýrfinnu dóttur sinni heimanfylgju
til móts við Jón íslending Jónsson.
Bréfið um þenna gerning undirritar síra
Loftur í Holti undir Eyjafjöllum 7. marz
1484.67)
61) D. I. V, bls. 667.
62) D. I. V, bls. 701-702.
63) D. I. V, bls. 714.
64) D. I. VI, bls. 203.
65) D. I. VIII, bls. 73.
66) D. I. VI, bls. 392.
67) D. I. VI, bls. 501.