Tjaldbúðin - 01.01.1902, Side 34
— 32
þingi 1885 bar Baldvin Baldvinsson upp tillögu
um, að söfnuðir kirkjufjelagsins »gerist sem fyrst lög-
bundnir, til betri tryggingar þeim, er hafa nauð-
synleg viðskifti við þá«. Á seinni kirkjuþingum
var síðan opt og mikið rætt um að löggilda kirkju-
fjelagið. En löggildingin hefur samt aldrei komizt
á. Á kirkjuþingi 1892 var dálítið rætt um
»Aldamót«, sem prestar kirkjufjelagsins höfðu
komið á fót haustið 1891 (»Tjaldbúðin« II.
bls. 24).
9. kirkjuþingið var haldið í Winnipeg 1893.
í’ar mættu erindsrekar frá 14 söfnuðum og þrír
prestar. Síra Jón var fjarstaddur sakir geðveiki
sinnar. Á kirkjuþingi þessu tóku j)eir Björn B.
Jónsson og Jónas A. Sigurðsson prestvígslu,
Síra Jónas varð prestur hjá nokkrum íslenzkum
söfnuðum í Norður-Dakota. Síra Björn varð
prestur íslenzku salnaðanna í Minnesota 1894
(»Tjaldbúðin« II. bls. 26). í sambandi við kirkju-
þing þetta má minnast á það, hvernig kirkju-
fjelagið hefur aflað sjer presta, Til þess hafa
verið farnar 2 leiðir síðan 1886: Ungir óg efni-
legir menn úr flokki Vestur-íslendinga, sem hafa
gengið í skóla og lesið guðfræði, hafa tekið prest-
vígslu, þótt þeir hafi eigi tekið embættispróf.
Þetta er alveg sama og gert var á íslandi, að
því er síra Pjetur Guðmundsson og síra Jón
Straumfjörð snerti. Hin aðferðin er að ná prestum