Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Síða 7
ÞJÓÐVILJINN — blað Sameiningarfloþkj alþýðu — Sósilista-
floþþsins nýtur sívaxandi útbreiðslu og álits, sem aðalmalgagn hinnaar
róttæhu og stórhuga alþýðu Islands.
Þjóðviljinn hefir í mörg ár verið dagblað róttæks og stórhuga verkalýðs.
Nafnið gaf Theódóra Thoroddsen, hin þjóðkunna ágætiskona, er unnið
hafði með manni sínum að hinum margþættu störfum hans, verið hans
önnur hönd við Þjóðviljann eldri. Theódóra sá og skildi, að einmitt hin
róttæka alþýða íslands til sjávar og sveita hélt áfram starfinu, sem þau
Skúli höfðu varið æfi sinni til, — að alþýðan ein var þess megnug að
berjast til úrslitasigurs fyrir íslenzkan málstað og óskoruð mannréttindi.
Þannig er nýji Þjóðviljinn tengdur blaði Skúla Thoroddsen, og sívax-
andi útbreiðsla blaðsins er vitnisburður íslenzku alþýðunnar um það, að
hún telur blaðið ekki kafna undir nafni.
Gerist áskrifendur með því að skrifa eða síma í afgreiðslu Þjóðviljans,
Skólavörðustíg 19, Reykjavík, sími 7500, 3 línur.
ÞJÓÐVILJIN N
— blaS íslenzkrar alþýSu. —
<
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ