Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 40

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 40
/ Alaskii cr jjöls\rúðugt dýralíj í stórjenglegu landslagi. vöxnum hamrabeltum, þar sem engin gola komst inn. Einu sinni í fyrndinni virðist hann hafa verið stöðu- vatn, sem brotið hefur sér göng fram til hafsins, en þó ekki breiðari en það, að rétt var að skip gætu mætzt í innsiglingunni, og svo grunnt var í opinu, að aðeins var hægt að fara þar um á flæði en hyldýpi þegar inn, er komið. Ekki var hægt að sjá hvaða erindi síldin átti inn í þennann fjörð, hún virtist ekki hafa þar neitt æti og hríð horaðist eftir því sem á veturinn leið. Við komum þarna um miðjan oktober. Þarna mátti aðeins nota lagnet, netunum var sökkt stutt niður og þau ekki tekin upp heldur dregin yfir bátinn þar sem hrist var úr þeim, en síðan var þeim sökt niður aftur jafnóðum. Oft var það, að síld var í hverjum möskva, hver útgerð hafði aðeins örfá net. Það óhapp vildi til, á stórstraumsflæði, tveimur dög- um áður en við komum, að stóreflis hvalur hafði fengið veður af síldinni í firðinum og skutlað sér inn um fjarðaropið. Hann komst ekki út aftur, og þarna gerði hann allt hringlandi vitlaust. Hann óð í síld- inni með boðaföllum og tætti netin í sundur. Engi*111 v.issi neitt ráð til að ráða niðurlögum hvalsins. Menn stóðu í hópum á ströndinni og skutu á hann úr riflnnl en ekkert virtist bíta á hann, þegar hann kom nPP og blés, var það eins og fegurstu Geysis gos. Nokkt' um dogum seinna, á flæði, hvarf hann eins hljóðlega og hann hafði komið, en síldveiðimennirnir bölvuðu sáran yfir netatjóni og spiltri veiði. Meðan við vorum þarna, skeði eftirfarandi atburðuf í Seldovia. Sýslumaðurinn kom einn daginn til að lelta að heimabruggi hjá karli sem bjó í útjaðri bæjannS> því þá var þarna áfengisbann eins og hérna heinaa> þegar sýslumaðurinn nálgaðist dyrnar hjá karlinnnl> réðist hundurinn hans að honum með grimmu geltn Sýslumaðurinn brást reiður við, dró upp marghleypu sína og skaut á hundinn og særði hann. Þá kom eigandinn út í dyrnar og sá hvað um var að vera. Varð hann óður af reiði, því honum þótti vænt um hundinn> en hundar í Alaska eru húsbændum sfnum jafnþarf*r og hestar voru hér heima. Hann rauk inn, sótti byssU 20 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.