Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Qupperneq 48
flaksins. Var unnið um nóttina að undirbúa björgun-
arstarfið. Korkflekinn var krossbundinn svo hægara
væri að halda sér á honum, strengir settir við hann
til að draga til og frá skipinu, allar festingar á
flekanum athugaðar vandlega, olía sett á tvo báru-
fleiga og þeir bundnir við flekann. Olía var sett á
nokkra brúsa og þeir hafðir í lífbátnum. 200 faðmar
af baujuvír var hafður tilbúinn og skildi báturinn
hafa hann sem öryggistaug til skipsins. Var nú öllu
komið fyrir í lífbátnum og línubyssan aðgætt og 'höfð
til taks.
Kl. 4 f. h. var hægt að hafa samband við Júní með
ljósmerkjum og sögðu þeir að öllum liði vel, en allir
komnir í framskipið því sjór bryti yfir skipið að
aftan.
Var Bæjarútgerð Hafnarfjarðar tilkynnt þetta. Kl.
5,30 tilkynnti Júní að sjór bryti fram yfir allt skipið
og væri nú öll skipshöfnin á hvalbaknum og ófært
að koma nálægt. Var radíó — Isafjarðar og Reykja-
víkur sagt frá þessu, voru þegar gerðar ráðstafanir
að senda menn frá Súgandafirði til að reyna björg-
un frá landi.
Hafði nú loftskeytamaður okkar stöðugt samband
við Júní með ljósmerkjum og sagði frá þeim ráð-
stöfunum, sem gerðar höfðu verið og hvernig við
hugsuðum okkur að gera tilraun til björgunar.
Kl. 730 sagði Júní, að heldur væri farið að draga
úr brotunum aftur, en nú voru bálin slokknuð svo við
sáum hann ekki, var því beðið birtingar. Kl. 8,30
voru 9 menn sendir á lífbátnum og höfðu þeir flek-
ann aftan í bátnum.
Baujuvírinn var fastur um borð hjá okkur og gáfu
þeir hann út um leið og þeir réru í áttina til Júní.
Var nú að byrja að birta, en vegna storms og
blindhríðar var erfitt að greina brotin.
Kl. 9,30 f. h. hafði báturinn komið sér fyrir, rétt
utan við brimgarðinn og lá fyrir akkeri og bauju-
vírnum. Var nú skotið með línubyssunni og í öðru
skoti náðu skipbrotsmenn línunni, drógu þeir til
sín taugina og síðan flekann. Oll skipshöfnin á Júní
var á hvalbaknum, skipið lá á stjórnborðs hliðinni,
brotsjóarnir gengu yfir skipið í ólögunum og brotnuðu
á aftur þili hvalbaksins, flekann drógu þeir að aftan-
verðum 'hvalbaknum stjórnborðs megin.
I fyrstu ferðinni fóru tveir menn á flekann og
gekk greiðlega að ná þeim í bátinn. Flekinn var nú
kominn út að Júní aftur, og var einn maður kominn
á hann þegar mikill brotsjór reið yfir flekann og
hvolfdi honum með manninum á.
Það, sem bjargaði manninum var, að hann hafði
handfestu á líflínunni á flekanum og komst upp a
hann aftur eftir að brotsjórinn var genginn hjá, var
flekinn þegar dreginn að lífbátnum og maðurinn tek-
inn um borð.
/
Næstu ferðir gengu greiðlega. Voru 3—4 menn a
flekanum í ferð, einum manni mistókst að kasta sef
/
á flekann, og féll í sjóinn, náði hann handfestu a
böndunum á flekanum og komst upp á hann.
Þegar búið var að bjarga 21 manni um borð í hf-
bátinn, kom bátur frá Júlí og fluttu þeir 9 menn um
borð til sín, bátur frá Skúla Magnússyni var einmg
til taks ef á þyrfti að halda og vélbáturinn Garðar
var í nánd með slysavarnasveit Flateyrar, kom þetta
sér vel, vegna þeirra atvika, er nú komu fyrir.
Var flekinn enn einu sinni kominn út að Júní og
voru 5 menn eftir á hvalbaknum. Einn maður var
kominn á flekann er gríðarmikill brotsjór reið yf*r
skipið og færði flekann á kaf með manninum a,
Iitlu síðar sást hvar flekanum skaut upp mannlaus-
um rétt framan við brimgarðinn, um svipað leiti sast
á manninn í stórgrýttum brimgarðinum, tókst hon-
um að komast gegnum brimgarðinn og upp í fjöru,
sáum við að hann hafði ekki slasast, var manninurn
bent að ganga inn með fjallshlíðinni þar sem betra
væri að lenda og brugðu bátverjar af Skúla Magnus-
syni og m.b. Garðar fljótt við og fóru inn með strönd-
inni með fleka til að ná manninum.
Af þessu varð töf við björgunarstarfið, en þegar
séð varð hversu giftusamlega þetta fór, drógu skiP'
brotsmenn flekann til sín og sættu færis að komast
á hann, um þetta leyti var brimið farið að aukast og
styttra á milli brotanna.
Fóru nú 2 menn á flekann og gekk greiðlega að
bjarga þeim um borð í lífbátinn.
I næstu ferð var erfitt fyrir þessa tvo menn, sem
eftir voru að halda flekanum við skipið því stutt var
í milli brotanna og fóru þau vaxandi.
Margar tilraunir voru gerðar til að halda flekan-
um að skipinu og endaði með því að línan sem la
frá Júní í flekann slitnaði.
Var þegar haldið um borð til okkar með flekann
aftaní og var hlynnt að skipbrotsmönnum eftir bezto
getu.
Utbjuggum við nú nýtt tóg í flekann í stað þes5’
sem slitnaði, var nú farið að falla það mikið út að
stöðug brot voru við skipið og var einnig farið að
brjóta mjög nálægt því, sem báturinn okkar hafð*
verið, töldum við því ekki ráðiegt og hættulaust að
halda áfram björgunartilraunum á þennan hátt, vaf
28 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ