Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Side 74
/ meir en aldarfjórðung hefur
Álþýðublaðið
verið málsvari sjómannastéttarinnar.
Það cr viðurkcnnt, að aldrei hafi jafnmiklar framfarir orð-
ið á jafnskömmum tíma í iífi þjóðarinnar og á þessum aldar-
fjórðungi. Og það er staðreynd, að mestar hafa framkvæmd-
irnar orðið hjá fólkinu sjálfu, á aðbúnaði þess, kjörum þess,
öryggi og atvinnu, þó enn sé fyrir mörgu að berjast á því sviði
Alþýðublaðið
hefur alltaf verið frumherji í þeirri baráttu.
Sjómannastéttin veit það allra stétta bezt. Hún gleymir ekki
baráttunni fyrir hvíldartímanum á togurunum, baráttunni
fyrir öryggismálum stéttarinnar, slysatryggingunum, sigl-
ingalögunum og fjölda mörgum öðrum málum, sem mið-
uðu að því að bæta kjör sjómannanna, tryggja afkomu þeirra
og vernda aðstendendur þeirra fyrir örbirgð, þó að þeir sjálf-
ir féllu frá.
Alþýðublaðið
hefur háð þessa baráttu við hlið sjómannasam-
• takanna.
Alþýðublaðið er jafnframt því að vera málsvari hinna vinn-
andi stétta orðið nýtízku dagblað, sem helzt enginn getur
án verið. Þatta er betur og bctur að koma í Ijós, því að út-
breiðsla Alþýðublaðsins hefur tvö- til þrefaldast síðastliðin
tvö ár og útbreiðsla þess fer dagvaxandi.
SJOMAN N ADAGSBLAÐIÐ