Sjómannadagsblaðið - 03.06.1963, Side 39
Sigling inn Eyjafjörð
Davíð Stefánsson
Loks eftir langan dag
lít ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli ég inn Eyjafjörð.
Ennþá á óskastund,
opnaðist faðmur hans.
Berast um sólgyllt sund
söngvar og geisladans.
Verja hinn vígða reit
Varðtröllin klettablá,
máttug og mikilleit,
Múlinn og Gjögratá.
Hljóti um breiða byggð
blessun og þakkargjörð
allir, sem tröllatryggð
taka við Eyjafjörð.
Blika sem brennheitt stál
björgin og djúpin köld.
Bjart var um Austurál
oftar en þetta kvöld.
Blástur frá bláum hval
blandast við fuglaklið.
Blœvakið bylgjuhjal
boðar mér drottins frið.
Ástum og eldi skírð
óskalönd birtast mér.
Hvílíka drottins dýrð
dauðlegur maður sér!
Allt ber hér sama svip,
söm er hin gamla jörð.
Hœgara skaltu, skip,
skríða inn Eyjafjörð.
Allt það, sem augað sér,
œskunnar hörpu knýr,
syngur og segir mér
sögur og cevintýr.
Mild ertu, móðir iörð,
Margt hefur guð þér veitt.
Aldrei ég Eyjafjörð
elskaði nógu heitt.
Þó finnst mér ást mín öll,
unaður minn og þrá
tengd við hin fögru fjöll,
fjörðinn og sundin blá.
Hvar sem ég flótta fer
friðlaus um ókunn lönd,
bið ég til bjargar þér,
blessaða Galmarsströnd.
Bœnin og barnsins trú
betri hinn týnda son.
Gleðin og guð og þú
gefa mér nýja von.
Stráin, sem blœrinn braut,
blessar þin líknarhönd.
Mjúk er sem móðurskaut
moldin á Galmarsströnd.
Faðmaðu, blíði blœr,
byggðir og sundin víð.
Sé ég hvar bóndabœr
brosir í vesturhlíð.
Þó komi ég sár frá sœ,
sekari en áður fyr,
á þessum bóndabœ
bíða mín opnar dyr.
Áfram — og alltaf heim,
inn gegnum sundin blá
guðirnir gefa þeim
gleði, sem landið sjá.
Loks eftir langan dag
leit ég þig, helga jörð.
Seiddur um sólarlag
sigli ég inn Eyjafjörð.
24 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25