Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 13

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 13
Sjómannadagurinn var haldinn í 43. sinn sunnudaginn 1. júní. Hátíðarhöldin fóru að mestu leyti fram með hefðbundnum hætti. Lóð Hrafnistu D.A.S. var skreytt með fánum allt umhverfis dvalar- heimilið og Jökulgrunn. Veður var ágætt, þó nokkur vindstrekk- ingur væri. Kl. 10.00 lék Lúðrasveit Reykjavíkur létt sjómannalög við Hrafnistu Reykjavík og Lúðra- sveit Hafnarfjarðar við Hrafnistu Hafnarfirði. Kl. 11.00 hófst minningarat- höfn um drukknaða sjómenn í Dómkirkjunni, þar sem biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson minntist sjómanna sem drukknað höfðu frá síðasta sjó- mannadegi. Á meðan biskup minntist sjómannanna var lagður blómsveigur að minnisvarða óþekkta sjómannsins í Fossvogs- kirkjugarði. Eftir hádegi kl. 13,30 hófust hátíðarhöldin í Nauthólsvík með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur, en áður höfðu aðildarfélög Sjó- mannadagsráðs í Reykjavík myndað fánaborg með íslenskum fánum og fánum stéttarfélaganna. Kl. 14.00 hófst útvarpsdagskrá og setti Anton Nikulásson hátíð- ina. Síðan fluttu ávörp f.h. ríkis- stjórnarinnarÓlafur Jóhannesson, í fjarveru sjávarútvegsráðherra. F.h. útgerðarmanna Ólafur Björnsson útgerðarmaður í Keflavík og Bjöm Þorfinnsson skipstjóri, formaður skipstjórafé- lagsins Öldunnar f.h. sjómanna. Að ræðuhöldum loknum heiðr- aði Garðar Þorsteinsson, ritari Sjómannadagsráðs, aldraða sjó- menn með heiðursmerki sjó- mannadagsins, en að þessu sinni hlutu þau þeir: Jakob Daníelsson vélstjóri, Þorkell Gunnarsson fv. matreiðslumaður, Eyjólfur Þor- valdsson fv. skipstjóri, Erlingur Jónsson bátsmaður og Ingólfur Stefánsson fv. skipstjóri og núver- andi framkv.stjóri F.F.S.Í. Síðan hófust skemmtiatriði. Skemmtibátaeigendur úr sigl- ingarklúbbnum Snarfara sýndu listir sínar á skemmti- og sjórallí- bátum. Kappsigling var á seglbát- um. Unglingar úr æskulýðsklúbb- um Reykjavíkur og nágranna- sveitafélaga kepptu á ýmsum gerðum seglbáta undir stjórn og eftirliti félaga í siglingarklúbbn- um Brokey. Keppt var á þrem gerðum seglbáta. Kappróður fór fram á Naut- hólsvíkinni og kepptu þar alls 10 sveitir. í kvennaflokki sigraði sveit B.Ú.R. og önnur var sveit Hrað- frystistöðvarinnar. I karlaflokki sigraði sveit Sendibílastöðvarinnar h/f og önnur var sveit Sigurplasts. Skjöldinn „Fiskimaður Morg- unblaðsins" hlaut til varðveislu til næsta sjómannadags, róðrarsveit Ásbjörns RE-50. Seld voru á hátíðarsvæðinu merki og blað dagsins, og gekk salan sæmilega. Fjölmenni var í Nauthólsvík að vanda, þrátt fyrir setningu lista- hátíðar á Lækjartorgi kl. 14.00 um eftirmiðdaginn. Einnig var veitingasala á svæð- inu sem kvenfélagskonur sjó- manna önnuðust og um kvöldið var sjómannahóf að Hótel Sögu. Sjómannadagsblaðið var selt um land allt og var það vandað að efni og frágangi. Dagskrá Ríkisútvarpsins var að hluta til tileinkuð sjómönnum á sjómannadaginn, undir stjórn og eftirliti Guðmundar Hallvarðs- sonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur. Sjómannadagurinn færir skipulagsnefnd og þeim fjöl- mörgu er veittu deginum lið og styrktu hana, bestu þakkir fyrir veittan stuðning. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.