Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 22

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 22
aldurs sakir. en Jónas varð sjötugur fyrr á þessu ári. eins og frá er greint á öðrum stað í blaðinu. Fjöldi kennara hefur starfað við skól- ann í langri sögu hans. bæði fastráðnir kennarar og stundakennarar og margir mikilhæfir menn hafa kornið við sögu, sem prófdómarar og skólanefndarmenn. Er ekki unnt að telja nöfn þeirra hér. þótt vert væri. Mikil breyting hefur að sjálfsögðu orðið á kennsluháttum og tilhögun með árunum, en skólinn hefur þó furðanlega haldið stíl sinum og skipan á dögum nýj- ungagirni kjaftafaga í skólum. Stýrimannaskólinn flutti síðar í „Stýri- mannaskólann" er stóð (og stendur) fyrir suðurenda Stýrimannastígs í Reykjavík. Þar var hann til húsa frá 1898—1945, er skólinn flutti í núverandi Sjómannaskóla. Flestir myndu nú telja að þá hefði byggingu þessa húss verið lokið, en fjár- veitingavaldið hefur að sjálfsögðu kosið að eyða fé sínu fremur í Krísuvík og til heiða, því eftir því sem næst verður kom- ist, lauk byggingu þessa húss raunveru- lega aldrei með þeim hætti, sem venja er nteð opinberar byggingar og skólahús. Á þessum árum hefur sjómannaskólinn haft ómælt gildi fyrir atvinnulífið. Hann hefur haft almennt menningargildi, haft gildi fyrir siglingalist og fiskveiðar og hann hefur komið sínu fólki til manns. Á þeim 90 árum, sem Stýrimannaskól- inn hefur starfað, hefur hann útskrifað unt 3500 nemendur, (farmenn og fiski- menn): Þessir menn hafa að sjálfsögðu sett svip sinn á atvinnumál þjóðarinnarog margir af nemendum skólans hafa orðið frægir með þjóð sinni og komist til frama á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins, því menntun úr Stýrimannaskólanum hefur komið að góðu gagni við allskonar störf, til sjós og lands. Þulu þessa fann Sæmundur K. Jónsson, veggfóðrarameistari, Rvk., í gögnum föður síns, Jóns K. Guðmundssonar, skipstjóra frá Arnarnúpi í Dýrafirði, en hann var bróðir Bjarna M. Guðmunds- sonar frá Kirkjubóli er skráði þessa þulu, en höfunda þulunnar er ekki getið. Þula þessi mun ekki hafa verið áður birt á prenti. Markúsyfir essi reiðar út um hranna grundir breiðar. Hrœðist ekki bárur bláar né bylmings rokur háar. Heldur kallar hann hátt að drengj- um herðið þið nú að öllum strengjum. Upp með toppsegl upp með jagar eins og þið sjáið best til hagar. Upp með fokku upp með klýfinn aldrei er ég sagður hlífinn. Nú, nú, stórsegl meðan strekkjum Neftunus veður undir rekkum. Hrœddir séu ítar eigi ég hefi ráðið stcerra fleyi, en ég mun við stýrið standa og stýra knerri eftir vanda. Óíafur svo að aukist friður undireins scektu flösku niður, 18 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ gefðu að bragða mönnum mínum með því það sé að vilja þínum. Dálítið ég dreypi t sjálfur því dágott er að vera hálfur. Margan þola mun ég slattann því marga hef ég farið brattann. Gamli Bjarni gcettu meðan gott vceri ef þú fengir séðan ísinn sem er allra fjandi og einstök drepsótt hér í landi. Litli Bjarni brasa máttu burinn Greips þér hjálpa láttu. Jón minn Pálsson jagarann strektu Jakob Bikter sjálfan vektu sá skal ekki sofa lengur sei, sei, nei, nei, fjarska gengur. Skútan undir voðum viðum veltur hrönnin grcen með síðum. Syngja strengir svigna rengur seglin pínast tognar strengur. Sveif í hendi hristist minni eg held eg varla stýra kunni. Þetta er Ijóta vinda vésið við erum þá við Hafnarnesið. Kindarhöfuð farðu að fýra finnst mér harla kalt að stýra. Ólafur láttu anker falla og ofan rifið þið seglin bara. Ut með bátinn ekki minna Ástríði eg hlýt að finna. Undireins vatn og ekkert gaman eg vil þvo mér strax í framan. Sœkið þið af mér fínu fötin fleygðu kokksi bót á götin. Hattinn svo á höfuð set eg þvi hetjulegur orðið get eg. Einn í bátnum aftan stend eg alt skal gjöra sem eg bendi annars fáið þið knefa að kanna ef kunnið þið ekki siði manna. Áfram áfram anga greyin ekki meira stjórnborðsmegin. Minna að aftan miðskipssláni meira þú í hálsi bjáni. Haltu við í hálsi glanni eg held þú verðir ekki að manni. Sofnaðu ekki útaf drengur ekki hót að jullan gengur. Nú er skammt að fríðu fróni fljótara þú í hálsi dóni. Herðið þið nú áykkar árum undan þessum stóru bárum. Áfram, áfram, upp á Iandið ástar þar eg knýti bandið. Uppskrifað af Bjarna M. Guðmundssyni Kirkjubóli í Dýrafirði.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.