Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Blaðsíða 28
Verður ekki önnur skýring á þess-
um mun en sú, að Jökulbyggðir
eru allra byggða afskekktastar. Þar
hefir þess vegna verzlun verið hin
versta og öll nýbreytni á þangað
örðuga götu. Því leitar fólkið það-
an, og þangað sem betur er hægt
að fylgja tímanum. En þar mun
um síðir koma, að sveitir þessar,
sem eiga ágæta veðurátt mikla
náttúrufegurð, og óþijótandi auð
fólginn í jörðu og sjó, munu verða
með hinum blómlegustu á land-
inu.
Grundarfjörður
á 35. Sjómannadaginn
Við lestur á þessari lýsingu,
hlýtur hver maður að undrast þau
umskipti, sem orðið hafa á útgerð
og framförum öllum í verstöðv-
unum á Snæfellsnesi. Sú skýring
er vitaskuld augljós, að slæm
hafnaraðstaða, vondar og örðugar
samgöngur hafa orðið til þess að
framfarir komu þarna síðar í þil-
skipaútgerð, þ.e. útgerð stærri
mótorbáta og togara. en á öðrum
stöðum.
Fjallaskörðí og vegleysur urðu
ekki til þess að hraða framförum,
því þessir staðir voru oft einangr-
aðir að vetrarlagi og í vorleysing-
um, frá öðrum byggðum landsins.
Að vísu má segja að svo sé enn, að
samgöngur á landi eru ótryggar
yfir vetrarmánuðina. En smám
saman hafa komið betri tímar á
þessum stöðum. Ekki hvað síst í
Grafarnesi, sem nú heitir Grund-
arfjörður.
Það er nú risið fallegt og mynd-
arlegt bæjarfélag og munu íbúar
vera um 700 (1979) en auk þess er
þar oft fjöldi aðkomumanna. Þar
er blómleg útgerð, malbikaðar
götur, falleg, nýbyggð hús og
vandaðar starfsstöðvar. Þá hefur
hafnaraðstaða batnað til muna og
er nú gerður þar út myndarlegur
fiskiskipafloti, þar á meðal togari.
Grundfirðingar halda að sjálf-
sögðu upp á Sjómannadaginn á
24 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
hverju ári og í fyrra héldu þeir upp
á Sjómannadaginn í Grundarfirði
og var mikið um dýrðir og veður
hið fegursta, sem og víðast um
land. Má segja að hver einasti íbúi
staðarins taki þátt í þessum há-
tíðsdegi sjómanna, enda er líf svo
að segja hvers heimilis, hvers
mann, nátengt sjósókn og sigling-
um.
Hátíðahöld Sjómannadagsins á
Grundarfirði árið 1980 hófust
klukkan 09 00 með því að fánar
voru dregnir við hún um borð í
bátaflotanum á höfninni og á við
húsin í bænum.
Um kl. 10:00 söfnuðust menn
saman við höfnina og var gengið í
skrúðgöngu til kirkju, þar sem
sjómannamessa hófst um kl.
10:30.
Kl. 14:00 hófust síðan hátíða-
höld við sundlaug bæjarins, en þar
setti Guðmundur S. Guðmunds-
son, varaformaður sjómannadags-
ráðs á Grundarfirði hátíðina og
bauð gesti velkomna. Þar kynnti
hann dagskrá sjómannadagsins.
Síðan flutti Jónas Guðmundsson,
rithöfundur hátíðaræðu dagsins, og
lýsti meðal annars áhyggjum ým-
issa sjómanna út af vaxandi af-
skiptum stjómvalda af veiðum, og
þeirri hættu er leyfisveitingar til
sjósóknar hafa í för með sér, eða
geta haft.
Að ræðu Jónasar lokinni, voru
tveir aldraðir sjómenn heiðraðir
með merki Sjómannadagsins, en
það voru þeir Magnús Jóhannsson
og Þorsteinn Ásmundsson.
Magnús Jóhannsson var um
árabil skipstjóri og útgerðarmaður
í Hrísey á Eyjafirði, áður en hann
kom í Grundarfjörð, en Þorsteinn
Ásmundsson var um árabil háseti
á togurum og öðrum skipum.
Þá hófst keppni í stakkasundi,
sem er árlegur atburður á Sjó-
mannadaginn. Keppt var um veg-
legan bikar, sem Ragnar Krist-
jánsson gaf fyrir nokkrum árum
og vann Stefán Tómasson hann nú
í þriðja sinn, og nú til eignar,
samkvæmt gjafabréfi er bikarnum
fylgdi, er hann var gefinn.
Þá var reiptog og lá reipið yfir
laugina, þannig að sá sem tapaði
var dreginn út í laug, við mikla ká-
tínu viðstaddra.
Það voru stúlkur úr fiskvinnslu-
stöðvunum, sem kepptu í reiptog-
inu og unnu stúlkurnar úr Hrað-
frystihúsinu.
Þá var koddaslagur og ýmsir
leikir og skemmtu menn sér hið
besta.
Að aflokinni útiskemmtun-
inni við sundlaugina, voru konur
úr kvenfélagi staðarins með kaffi-
sölu í matsal Hraðfrystihúss
Grundarfjarðar og var þar mikið
drukkið af kaffi og borðað af
kökum og brauði.
Kl. 17:00 var Björgunarsveitin
síðan með björgunaræfingu við
höfnina og þótti hún takast vel.
Hátíðahöldum Sjómannadag-
ins á Grundarfirði lauk síðan með
dansleik um kvöldið. Var fyrst
dansleikur fyrir 15 ára og yngri og
stóð hann til kl. 22::00, en á eftir
var dansleikur fyrir fullorðna og
stóð hann til kl. 02:00 um nóttina
og skemmtu menn sér vel.
Sjómannadagsráð á Grundar-
firði var þannig skipað:
Gunnar Hjálmarsson, formað-
ur; Guðmundur S. Guðmundsson,
varaformaður; Ingólfur Þórarins-
son, Gunnar Magnússon og Öm
Jónsson.
J.G.