Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Qupperneq 31
Sjómanna
Höín
dagnrinn
Hornai
Höfn á Homafirði er ein feng-
sælasta verstöð landsins og þar er
sóttur sjór við örðug skilyrði á
stundum, og hefur verið lengi.
Þar er nú rekin fjölbreytt fisk-
vinnsla á verðmætum sjávaraf-
urðum, en það er bátaflotinn, sem
stendur að fiskveiðunum, því
Homfirðingar eiga ekki togara.
Á Homafirði er stórgóður
bátafloti og mjög vel gjörðar
vinnslustöðvar. Þar á meðal eitt
stærsta og fullkomnasta frystihús
landsins.
Það er þó vart fyrr en á seinustu
30 árum, að miklar framfarir urðu
í sjávarútvegi á Homafirði. Fyrir
tæpum 50 árum lýsir Jón á Ysta-
felli staðnum á þessa leið:
Homafjörður
Norður frá Almannaskarði
heldur áfram mjög hrikalegur og
gróðursnauður fjallgarður, allt
norður í austurhom Vatnajökuls.
Fjöllin eru há, en sundurtætt á
marga vegu. Vestan við fjöll þessi
ganga fram skriðjöklar úr Vatna-
jökli, en úr þeim jöklum koma
Homafjarðarfljót, afskaplega
breiður vatnsflói, sem dreifist um
víðar eyra rog grynningar og er
sífellt að breyta rásinni; oft eru
álamir djúpir og illir yfirferðar.
Neðar hverfur straumurinn og
vatn fljótanna blandast sjóvatni í
hinu mikla lóni, sem nefnist
Homafjörður. Framan við
Homafjörð er mjótt sandrif og
aðeins þröngur ós milli fjarðar og
sævar. Hið innra er nægt dýpi
litlum hafskipum og höfn góð.
Hafa Skarðsfjörður og Homa-
fjörður sama ósinn.
Héraðið beggja megin við fljót-
in og fjörðinn nefnist einu nafni
Homafjörður. Þar eru tvær sveitir.
Nesin eru fögur sveit, vítt undir-
lendi, grasi vafið; skiptast þar á
hólar og balar með töðugresi og
mýrarsund, og ber reisulega bæi
hátt á hólunum. Út í fjörðinn
teygjast iðgræn nes milli krókóttra
voga, en grænar eyjar og hólmar
eru með ströndinni. Fjöllin að
byggðarbaki eru gróðurlausir en
fagrir tindar, ýmist úr dökku blá-
grýti, eða ljósu bergi með ótal lit-
brigðum. Víðsýnt er af bæjunum á
hæðunum og sér í norðri og vestri
svarta tinda og hvíta jökulfossa.
Þar er búsæld mikil, ágætar engjar
og góð tún; hvergi á landinu ná
garðávextir fyrr á sumri fullum
þroska. Snjólétt er og útbeit næg.
Neðst á láglendinu teygist fram
oddi í fjörðinn. Við þennan odda
er verzlunarstaðurinn Höfn. Þar
er nú risið upp töluvert mann-
margt þorp, og er þar mikið út-
ræði um vertíð; þangað kemur þá
fjöldi báta austan af fjörðum. Nú
hafa þorpsbúar gengið á undan
öðrum, með því að hefja stórfellda
ræktun með samvinnusniði. —
Frægust höfuðból á Nesjum eru
prestssetrið Bjamames, sem mjög
kemur við sögu Jóns Arasonar, og
Hólar, skammt ofan við Höfn.
Mýrar eru á láglendinu vestan
við fjörðinn og fljótið. Þar eru flat-
ar mýrar með holtum á milli.
Standa bæimir margir saman í
hverfum á holtunum víðast hvar.
Ágætar engjar eru í sveitinni, en
vetrarbeit engin talin. Um sveitina
vestanverða falla margar jökul-
kvíslar og er þar meiri víðátta
sanda og aurvatna en grasengja.
Mjög er það til baga búskap
Homfirðinga, að þar skortir af-
réttarlönd að mestu.
Sjómannadagurinn á
Homafirði 1980
Sjómannadagurinn hefur verið
hátíðlegur haldinn á Höfn um
margra ára skeið, og er ein aðal-
hátíð kaupstaðarins, sem er skilj-
anlegt, þar eð staðurinn byggir
nær einvörðungu á sjávarafla og
verslun. Þar er því fjöldi sjómanna
og þeir setja svip á bæinn.
Sjómannadagurinn 1980 var
haldinn í björtu og fögru veðri og
muna menn vart aðra eins veður-
blíðu, og geta þó veður verið góð á
þessum slóðum.
Hátíðahöldin hófust á laugar-
dag kl. 14.00 með róðrarkeppni og
kepptu þar bæði karla- og
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25