Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 39
Leó í brúnni á Leó og þorskurinn rótast inn, en nú stendur til að kaupa nýtt skip í staðinn
fyrir Leó sem fórst.
væri gengdarlaust og benti á dæmi þess að
úr einum saltkassa hefðu verið taldir 537
fiskar miðað við 50—60 fiska af Banka-
fiski.
Matti tók undir þetta en sagði að menn
væru píndir í þessa veiði. hver yrði að
reyna eins og hann gæti.
..Það ætti að setja kvóta á fiskafjöld-
ann.‘" sagði Óskar og Matti minnti a að
þegar hann hafi róið fyrir austan land hafi
skuttogararnir verið með pólska klæðn-
ingu á við humarklæðningu og þetta hefði
valdið því að möskvarnir hefðu ekki opn-
ast enda hefðu gjarðir að auki tryggt slíkt.
..Þeir voru alveg hissa fyrir austan,“
þegar við rérum þaðan og vorum ekki
með þessa pólsku klæðningu,“ sagði Sig-
urjón. „nei það er nauðsynlegt að hafa
eftirlit. en það verður jafnframt að gæta
þess að það sé ekki of mikið. Ef það þarf
að fara að sækja í bandvitlausum veðrum,
þá er ef til vill of langt gengið. Og sem
dæmi um vitleysuna má nefna að það er
Sigurjón og Leó var Óskar að gantast með
það að Matti hefði aðallega verið fyrir
dúfur þegar hann var strákur og hefði
keypt tvo poka af dúfufóðri fyrir ferm-
ingarpeningana sína.
Það hummaði i Matta og hann minnti
pabba sinn á að þeir Sigurjón bróðir hans
hefðu keypt lóð og 1500 metra af timbri
fyrir fermingarpeningana sína. Það var
snemma byrjað að sækja fast.
Ég spurði þá feðga að því hver þeirra
væri frekastur, en þegar þeir ræða málin
má oft ekki á milli sjá hver er mesti strák-
urinn í sér þegar svo ber undir.
„Það er ekkert vafamál,“ svaraði Sig-
urjón aflakóngur sem hefur verið afla-
kóngur Vestmannaeyja 8 vertíðir í röð og
var í baráttunni í vertíðarlok þegar Sjó-
mannadagsblaðið fór í prentun," kallinn
er frekastur.“
„Ég kyngi því,“ svaraði Óskar,“ með
frekjunni hefst það.“
„Hann heldur stundum að hann sé eini
maðurinn í heiminum sem gerir rétt,“
sagði Matti.
„Hann hefur alltaf komist fram hjá
stnum vitleysum, þær hafa ekki verið svo
stórar," skaut Sigurjón inn i og brosti, en
hann rekur fiskverkunarstöðina Nöf
ásamt Óskari og Gísla Sigmarssyni hálf-
bróður hans.
Talið barst nú að veiðitakmörkunun og
Óskar sagði það á hreinu að hann hefði
verið erfiður veiðieftirlitinu í gamla daga
ef slíkt hefði verið til staðar þá.
Sigurjón hafði á orði að smáfiskadrápið
Emma, drekkhlaðin með tæplega 70 tonn.