Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Síða 58
hann þekkti þar aðeins einn
mann, ungan mann að vestan,
sem var með honum á Brödrene
um sumarið.
Jóhann minnir, að það hafi
verið í þessu veðri, sem skútan
Langanesið missti út af sér 5
menn, en er þó ekki viss um það.
Slys voru svo tíð á skútunum.
Skýrslur sýna að þær urðu mestu
slysafleytur íslenzkrar fiskveiði-
sögu síðari tíma. Það reyndust
verða meiri slys á skútunum en
var á árabátunum, en það hafði
menn sízt grunað.
Jóhann Stefánsson kann líka
dæmigerða togarasögu af erfið-
leikunum við að komast heim af
Halamiðum á gömlu togurunum
þrautahlöðnum, eins og þeir voru
jafnan á stríðsárunum, þegar þeir
komu af veiðum. Hann var þá
skipstjóri á Gamla Geir, sem var
308 tonn, eða nokkru undir með-
alstærð togaraflotans á stríðsár-
unum, en meðalstærðin var 322
tonn.
Jóhanni segist svo frá:
„Geir varð, eins og flestir tog-
aranna, ákaflega krankur eftir að
kolalestin var tekin undir fisk og
kolaboxin minnkuð. Hann hlóðst
einnig þá fram, og það gerðu þeir
líka flestir eftir breytinguna, þegar
kolaboxin voru orðin nær tóm í
lok veiðitúra, því að þau tóku ekki
meira en rétt dugði útí skikkan-
legan túr. So var brúin járnvarin
og hurðirnar voru úr hálftommu
stáli og steypt möl ofan á brúar-
þakinu.
í lok túra voru hrein vandræði
að ferðast á skipinu. Ég held ég
hafi einu sinni gripið til ráðs, sem
ég veit ekki til að neinn annar hafi
notað. Við vorum á heimleið af
Halanum og fengum flatskellu
slæma, þegar kom fyrir Jökul. Það
reyndist ekki viðlit að halda áfram
á skipinu. Við vorum orðnir svo
tæpir með kol, að ég þorði ekki að
fara að slóa. Við urðum að halda
viðstöðulaust til Reykjavíkur, ef
við ætluðum að ná til hafnar á
þeim kolum, sem egtir voru.
Ég lét taka báðar stálhurðirnar
frá brúnni og kasta þeim fyrir
borð, síðan tókum við trollvírana
af trommunum, drógum þá af
hvorri trommu um sig, yfir poll-
ana og síðan aftur á spilkoppana
og renndum þeim niður öskuopin
í loftventlunum og áfram niður í
kolabox, , þar sem þeir voru
hringaðir niður. Það munaði mik-
ið um þessi þyngsli, sem þannig
færðust af dekkinu og niður í botn
á skipinu aftast. Stjórnborðstrollið
var orðið lélegt og ég lét skera það
undan, en þá rann sjór greiðar út-
af skipinu. Eftir þessar aðgerðir
allar gátum við haldið áfram á
fullri ferð til Reykjavíkur.“
Það, sem hér hefur verið sagt af
sjómannsferli Jóhanns Stefáns-
sonar, skútuskipstjóra og togara-
skipstjóra, er helzttil snubbótt, en
60 ára sjómannsferill verður ekki
rakinn ítarlega í tímaritsgrein og
það er líka svo, eins og Jóhann
drap á í upphafi, að beztu sög-
urnar taka gömlu sjómennimir
með sér í gröfina.
Á.J.
FISKIMALÁSJÓÐUR
Tjarnargötu 4 — Reykjavík
Stofnsettur með lögum 23. maí 1947.
Veitir ián gegn siðari veðrétti til stofnunar alls
konar fyrirtækja, sem horfa til eflingar
fiskveiðum og hagnýtingu sjávar-
afurða og veitir styrki
í sama tilgangi.
Fé sjóðsins á að verja
til eflingar sjávarútvegi landsmanna.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025 - SÖLUSTJÓRI: HEIMASÍMI 71400.
Sendir sjómönnum bestu kveðjur á Sjómannadaginn
52 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ