Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 59

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 59
Vorið 1919 var ég skráður sem háseti á seglskip er hét Elín og var gert út frá Hafnarfirði til fiskveiða. A skipi þessu voru um 20 menn, og var áhöfninni skipt í tvo hópa sem nefndir voru stjómborðs- og bak- borðsvaktir, en skipstjóri var fyrir þeirri fyrr nefndri en stýrimaður fyrir þeirri síðar nefndu. Ekki veit ég hvað olli því að þetta fyrir- komulag var haft, en ég get mér þess til að þrjár ástæður hafi getað verið fyrir því, þ.e. veiðamar, hagræðing segla og kojupláss. Ég man ekki betur en við værum tveir um hverja koju í lúkamum. Því miður liggur lítið eftir sjó- menn á skrifuðum blöðum, sjóar- ar hafa alltaf kosið frekar að handleika melspíru en penna. Það má því vel vera að ég geti mér skakkt til er ég reyni að færa nokkur rök fyrir því að Hundavakt hafi ekki verið heitin eftir því hvað hún var leiðinleg, og er ég reiðu- búinn að hálsa yfir og jafnvel kú- venda ef aðrir bjóða betri leið til hins rétta. En með fullri virðingu fyrir lús- inni sem öðrum lífverum á þessari jörð og þrátt fyrir kristilegt lítillæti einsog það að maðurinn komst Hæðarmælir sólar. Hundavaktin Síðan var sólarhringnum skipt í 5 vaktir, sem allar höfðu sín heiti og voru mislangar eftir því á hvaða tíma dagsins þær voru teknar Þær hétu: Hundavakt frá 0000—0400, Lita eða Stuttavakt frá 0400— 0700 Morgunvakt frá 0700—1200, Kvöldvakt frá 1900—2400. Nöfn vaktanna skýra sig að mestu leyti sjálf nema Hunda- vaktin og þegar ég fyrir nokkru heyrði að enskir sjómenn köll- uðu þá vakt vöku yfir leiðum framliðinna Grave yard watch, sem að sjálfsögðu mætti kalla sér- hverja vakt á sjó vaknaði hjá mér löngun að setja mína skoðun fram. Síðan þar við bættist, að annar sjómaður íslenskur að vísu sagði mér að forfeður okkar hefðu rétt fram handlegg er þeir voru að sigla milli landa, til þess að sjá hvemig lúsin hagaði sér, því hausinn á henni snéri alltaf í norður. Sennilega hefur hér verið átt við rétt norður. ekki óstuddur milli húsa, kem ég því ekki í mitt hnöttótta höfuð að lúsin hafi leitt forfeður okkar landa í milli, hitt skil ég mun betur að herrarnir hafi hjálpað lúsinni við landnámið. Við sem búum í þéttbýli í bæj- um og borgum, þar sem rafljós eru kveikt um leið og sólin sest í vestri, eigum að vonum erfitt með að gera okkur í hugarlund af hve miklum kunnugleik þeir litu til stjamanna sem notuðu þær sem tímamerki og vegvísa. Smalinn sem stóð yfir fénu vissi hvaða stjama átti að bera í beitarhúsin þegar tími var kominn til að hýsa féð og mjaltakonan vissi í hvaða hnúk eða skarð stjömumar í Orion beltinu áttu að bera í þegar mál var að fara í fjósið. En fáir munu þó hafa átt meir undir björtum himni en sjómaður á hafi úti. í rúm fjögur þúsund ár, eða frá því vöruflutningar hófust á sjó austast við Miðjarðarhafið og við Persaflóa og þar til kompásinn var kominn í almenna notkun á 13. öld, höfðu þeir ekkert annað en stjömur og vindbáru til þess að fara eftir er þeir voru að flytja vaming staða í milli, gull til févana fursta og menningu frá einu landi til annars. Þegar Grikkir tóku þátt í siglingum á Miðjarhafi um 8 hundruð f.Kr. þá bjuggu þeir til hina svonefndu vindrós, sem sýndi helstu vindáttir þar eystra. Sjó- menn þurftu því að þekkja margar stjömur og stjömumerki með nafni og fylgjast með gangi þeirra, en til þess að sjá hvort stjama væri að hækka eða lækka notuðu þeir spýtu, sem þeir héldu frá sér með útréttum handlegg, eða þeir not- uðu framhandlegginn, en hann var þekkt lengdareining í Egypta- landi frá ómunatíð, og séð hefi ég því haldið fram að Nói hafi notað það mál við smíði Arkarinnar, en hvort það sé satt eða ekki þá er víst að þessi lengdareining var notuð við byggingu pyramida og við SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.