Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 65

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Page 65
Sjó annadagurinn Listahátíd 1980 í fjörutíu og þrjú ár hefur Sjó- mannadagurinn verið hátíðlega haldinn í Reykjavík, og lengst af þeim tíma einnig um allt land, fyrsta sunnudag í júní, með þeirri undantekningu einni að væri fyrsti sunnudagur í júní hvíta- sunnudagur, skyldi Sjómanna- dagurinn haldinn næsta sunnudag á eftir. Orsök þessarar undan- tekningar var sú, að þegar félagar úr hestamannafélaginu Fákur komu að máli við Sjómannadags- ráð og bentu á, að Fáksmenn hefðu helgað sér hvítasunnuhelg- ina til kappreiða um árabil var strax fallist á að spilla ekki degin- um fyrir þeim Fáksmönnum með því að láta Sjómannadaginn bera upp á hvítasunnudag. Sjómenn hafa ekki þurft að kvarta yfir því þessi 43 ár sem þeir hafa haldið daginn hátíðlegan, að nein önnur samtök hafi truflað fyrir þeim hátíðarhöldin, fyrr en nú á síðasta Sjómannadaginn í Reykjavík, þá bar svo til að sett var svonefnd Listahátíð með pomp og prakt í miðbænum í Reykjavík í sama mund og sjó- menn söfnuðust saman í Naut- hólsvík. Það var eins og við mátti búast að fólki væri meiri nýlunda í setningu Listahátíðarinnar með því auglýsingasprelli sem auglýst var að henni fylgdi heldur en hefðbundnum hátíðarhöldum sjómanna, enda gætti þar minni þátttöku en undanfarin ár. Forstöðumönnum Listahátíðar átti að vera fullkunnugt um, að þeir voru að nota til setningarinn- ar þann eina dag á ári sem sjó- menn höfðu helgað sér áratugum saman, en létu það einu gilda. Ennþá er sú tíð að margir lista- menn þjóðarinnar eru uppaldir til sjávar eða sveita og bera virðingu fyrir hefðbundnum atvinnuveg- um þjóðarinnar. Innan sjómannastéttarinnar eru og hafa verið margir lista- menn og sjómannasamtökin hafa borið gæfu til að styðja við bakið á sumum þeirra. Elsta dæmið sem skráð er í okkar gögnum er framlag til eins okkar mesta listamanns Jóhann- esar Kjarvals, er var sjómaður áð- ur en hann hóf listnám. Hann var þá að svelta úti í Kaup- mannahöfn, og ætlaði að gefast upp á náminu. Sótt hafði verið um styrk úr ríkissjóði fyrir Kjar- val, en því hafði verið synjað. Eft- irfarandi er skráð í gjörðabók Skipstjórafélagsins Aldan: Mannfjöldi við Leifsstyttuna á Skólavörðuhæð á annan sjómannadaginn 1939. Fundur 23. október 1912 „Einar Einarsson, skipstjóri flutti kveðju til félagsins frá Bjama Jónssyni frá Vogi, sem hann hafði hitt fyrir skömmum tíma í Noregi. Hann hefði skýrt sér frá, að fátækur sjómaður Jóhannes Kjarval, stundaði nú málaralist í Kaupmannahöfn. Hann hefði lítil efni og hefði sótt um styrk til Alþingis en verið synjað. Kennarar hans hefðu lok- SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 59
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.