Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 67

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 67
úr Borgarfirði til Reykjavíkur. Unglingsstúlka stóð Við veginn og bað um far, og lofaði ég henni að sitja í bílnum til Reykjavíkur. Hún sagðist vera til dvalar á sveitabæ í Borgarfirðinum, einskonar kaupakona. Hvað finnst þér nú skemmtilegast í sveitinni? spurði ég þetta borgarbarn. „Að pissa úti í náttúrinni,“ sagði hún. Já það getur verið notalegt, sagði ég, og fyrst þú ert nú svona mikið uppá að athafna þig frjálslega úti í náttúrunni, væri þá ekki ráð að þú sýndir þessa listgrein þína á Lækjartorgi með Japananum. Þú hlýtur að geta pissað listrænt fyrir listahátíðarmenn. Þetta fannst henni stórgóð hugmynd, auðvitað væri hægt að pissa listrænt. Það má nú segja, því að þessi þjóð er að verða mikið uppá listina. Ég vil ljúka þessu spjalli um sjómenn og listamenn með nokkrum orðum um nauðsyn þess, að íslenskri æsku sé innrætt að hún þarf að gera tilkall til sjálfrar sín og komast í tengsl við hin þjóðnýtu störf og muna það að þessi þjóð hefur sannarlega lifað í sveita síns andlitis og hvað sem listinni líður, verður hún ævinlega matsatriði. Þá getur ekki annað gilt í okkar fámenna og erfiða landi, en það að þeir sem mikil- verðustu atvinnuvegina stunda, njóti virðingar og störf þeirra séu metin að verðleikum, en það sé ekki sparkað í þá og þeim sýnd óvirðing eins og átti sér stað um helstu atvinnustétt þjóðarinnar á síðasta Sjómannadegi í Reykjavík. Það er von mín að sú saga endur- taki sig ekki. G.H.O. Halldór Jónsson loftskeytamadur — iHinning Fæddur 21. júlí 1908. Dáinn 13. febrúar 1981. Sú staðreynd verður ekki umflúin að eitt sinn skal hver deyja og skilja við jarðvist sina. En maður hrökk við er óvæntar fréttir bárust um að Halldór Jónsson, vinur okkar, væri allur. því hann hafði kvatt okkur kátur og hress fyrir mánuði, með þeim ásetningi að veita okkur frekara liðsinni er hann kæmi úr fríinu. Þá ætlaði hann að taka að sér að sjá um útgáfu fréttabréfs Hrafnistu, sem gefið er út 3—4 sinnum á ári fyrir vistfólk og starfsfólk Hrafnistu, einnig annaðist hann vörslu bókasafns Hrafnistu í Reykjavík í nokkur ár. Þetta voru miklar sorgarfréttir. Halldór hefur alla tíð verið mikill félagshyggjumaður og traustur hlekkur í uppbyggingu Sjómannadagsins og Far- manna- og fiskimannasambands íslands. Hann var kosinn sem fulltrúi Félags ís- lenskra loftskeytamanna í fyrsta fulltrúa- ráð Sjómannadagsins 1938 og fulltrúi þess félags í 10 ár. Foreldrar Halldórs voru Karítas Þor- steinsdóttir frá Hvammi í Mýrdal og Jón Oddsson, skósmiður frá Gunnlaugsstöð- um í Stafholtstungum. Halldór kvæntist 4. febrúar 1938 Ástríði Markúsdóttur, Grímssonar skip- stjóra í Reykjavík. Ástríður var fædd í Reykjavík 13/8 1918, dáin 31/10 1979. Börn þeirra hjóna eru Margrét Helga, f. 14/2 1939, gift Júlíusi Egilssyni, Þorsteinn Jón, f. 3/6 1942, eðlisfræðingur og starfar nú í Miinchen í Þýskalandi og er kvæntur japönskum eðlisfræðingi, Tomoko Yasuda, Markús, f. 16/10 1949 ókvæntur. Halldór hóf ungur sjómennsku á tog- urum, lauk prófi frá Samvinnuskólanum í Reykjavík 1931 og loftskeytamannsprófi frá Loftskeytaskólanum í Reykjavík 1932. Á ýmsum togurum var hann síðan loftskeytamaður til 1941. Hann gerðist framkvæmdastjóri Fiskimálanefndar 1945—1947, og framkvæmdastjóri Togaraútgerðar fsfirðinga hf. 1948— 1950. Halldór vann við útgerð Júpíters og Mars hf. í Reykjavík 1951—1953 og tog- araútgerð Keflavíkur, b/v Keflvíking 1953—1955. Ritstjóri sjómannablaðsins Víkings var hann í 7 ár, í tveimur áföng- um, og meðritstjóri Sjómannadagsblaðs- ins í 14 ár. Halldór var sæmdur heiðurs- merki Sjómannadagsins í Reykjavík 1973 fyrir margvísleg og heillarík störf fyrir sjómannastéttina, og var vel að þeim heiðri kominn. 1966 hóf Halldór svo störf á skipum Eimskipafélags íslands, og var þar í nokkur ár. Halldór hefur ekki brugðist hinni hefðbundnu köllun sinni sem loftskeyta- maður, að yfirgefa ekki starfið eða að ganga frá verkum þeim er honum var trúað fyrir, og honum við kom, fyrr en öllu var vel lokið. Þessi eiginleiki hefur verið ráðandi í hans eðli, hversu marg- háttuð störf sem hann hefur tekið að sér. Halldór var léttur í lund, og var hugar- kæti hans oft örvandi og hann var hrókur alls fagnaðar í góðum vinahópi. Hann var þeim eiginleika gæddur, að björtu hlið- arnar komu ávallt fram hjá honum, þó um vandkvæði væri að ræða. Það gerði hon- um léttara að leysa margan vandann, er að höndum bar við hans umfangsmiklu trúnaðarstörf. Ástríður og Halldór lifðu í hamingju- sömu hjónabandi, og var Ástríður honum styrk stoð i störfum hans. Halldór var góður tungumálamaður og var honum eiginlegt að nýta frístundir sínar til að þýða ýmislegt er kom nærri hans hugðarefnum, aðallega varðandi sjómennsku og siglingar. Einnig þýddi hann bækur fyrir bókaforlög. Fulltrúaráð Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði og við sem sæti eigum I stjórn þess, færum Halldóri Jóns- syni hinstu kveðju og þökkum honum fyrir hans óeigingjörnu og margháttuðu störf fyrir sjómannasamtökin. Við færum aðstandendum hans samúðarkveðju okkar. Guðmundur H. Oddsson SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 61
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.