Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 90

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 90
tekið sér nál í hönd og þóttist ætla að bæta netið, en kunni lítið til þess, og fannst skipstjóranum, að hann væri betur kominn í fiskað- gerðinni. Þá orti Þorbjörn: — Þið kunnið ekkert, en heimtið hitt að hafa í kaupinu metið. Farðu í ýsuna, fíflið þitt ég fœ hann Gísla í netið. Um skipsfélaga sinn látinn orti Þorbjörn: Stilltur, prúður, starfsfús, glaður stœldir minna. Tryggur vinur vina sinna, vart þú lagðir orð til hinna. Æðruleysið einkennandi á allar lundir. Timinn lœknar ótal undir. Endurfundir, góðar stundir. í Tryggvasögu Ófeigssonar segir svo á einum stað: Við vorum á gamla Júpiter að toga við Vesturlandið útaf Kögri, og ég og Bjarni stýrimaður vorum að tala saman um, hvernig togað væri, hann ætlaði að fara að leysa mig af, og ég skýrði fyrir honum, hvernig ég hefði togað. .. . Þor- bjöm „skipsins“ hafði verið við stýrið. Við veittum honum enga athygli, og orti hann þessa vísu, er hann heyrði á tal okkar Bjarna: Útaf Kögurs yztu tá, eftir lögum settum, bœgðu drögu Bjarni frá botnsins smögum þéttum. „Þorbjörn var fimur hring- hendusmiður“. Vélstjóri einn, áhugasamur og hæfileikamaður mikill, var í landi um hríð og barmaði sér yfir því, að hann kæmist ekki á sjóinn, eftir að hafa verið til menntunar í landi og væri sín þó þörf á Úranusi. Þor- bjöm var nálægur og orti: 84 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Útlœrður stend ég uppi hér, óþarft er slíku að flíka. Úranus b'iður eftir mér, á ég að bíða líka? Skipsfélagi hans var dugnaðar- maður og vildi ekki láta þess ógetið, þar sem hann var Þing- eyingur. Þorbjörn skipsins orti: Hýrnar þegar hlustir sker hól um sérhvern fingur. Sunnlendingur sér þar fer Suður-Þingeyingur. Það sagði Þorbjöm sjálfur, eftir að hann kom í land og seztur um kyrrt á Hrafnistu, að hann kæmi ekki svo til Tryggva, að hann hefði ekki vísu með í fórum sínum og launaði þá Tryggvi skáldi sínu, ef vísan var dýrt kveðin: Fyrir stöku staupi má stinga að fornum vini. Tindilfœttur tifa ég frá Tryggva Ófeigssyni. Ekki voru þó móttökumar alltaf jafngóðar: Markaður er mikið lár, mínar fyrir bögur. Mun þó selja enn í ár í A ðalstrœti fjögur. Það var fátítt, en kom þó stöku sinnum fyrir, að Bjössi svaraði óhnögglega með vísu, ef honum fannst ómaklega að sér vikið orðum. Einu sinni var það, að hann barði dyra hjá manni, sem oftast greiddi götu hans, ef mikið lá við, og svo var í þetta skipti, þegar Bjössi kvaddi dyra. Hús- ráðandi kom til dyranna, en þegar hann sá Þorbjöm, þótti honum hann ekki jafnsnyrtilegur og hans var vandi, því að Þorbjöm var snyrtimenni mikið og varð að orði: — Hvað er að sjá þig Þorbjöm, þú ert eins og forugur bolakálfur. Þorbirni rann í skap og svaraði: Fellir saur í farið sitt forugur bolakálfur. Finnurðu ekki fífliðþitt fýluna af þér sjálfur? Það varð fátt um kveðjur, þegar Þorbjöm hafði flutt vísuna. Margar vísur orti Þorbjöm til skipa þeirra tveggja sem hann var lengst á, Júpiters og Neptúnusar. Þessa orti hann eitt sinn um sig sjálfan og Júpiter: Flutum við fullir báðir fœrandi björg í ver. Bleytunni báðir háðir Bjössi ogJúpiter. Eftir að Þorbjöm kom á Hrafn- istu orti hann líklega heldur fátt. Þó er það engan veginn víst, svo dult, sem hann fór með kveðskap sinn. Hann kastaði samt stöku og stöku til náungans og nokkrar þeirra er að finna í Hrafnistubréf- inu. Herbergisfélagi hans, Einar, tók mikið í nefið, svo mikið, sagði Bjössi, „að ég hnerra, þar sem ég sit á rúminu gegnt honum“. Annar Einar var mikilsverður maður á heimilinu, tók oft snún- inga af vistmönnum og hjálpaði þeim, sem áttu erfitt með að sinna erindum sínum úti við, svo sem ef þá vanhagaði um eitthvað til að hreinsa með kverkamar og bægja burtu kvefskít. Um þessa Einara orti Bjössi: Einars troðið tóbaksnef Tobba vekur hnerra. A nnar deyfir eymdar kvef Einar sendi-herra. Þeir voru eitthvað að kvarta um það, karlamir á Hrafnistu að sveskjur væru þar af skomum skammti á borðum, en þær bættu þeim meltinguna sögðu þeir. Þetta mun hafa stafað af því, að eitt-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.