Eimreiðin - 01.10.1927, Síða 19
eimreiðin
KÓRVILLAN
323
fjórir bræður hinar fjórar árstíðir. Vér skulum nú til að byrja
með ekki furða oss á því, þótt vér sjáum, að árstíðunum sé
fremur gefið karlagerfi heldur en kvenna. Það ætti jafnvel
ekki að virðast nein nýbreytni, þar sem í Frakklandi einungis
ein af árstíðunum fjórum, það er haustið, er kvenkyns, og
jafnvel um það eru málfræðingar vorir ósammála. En í latínu
er autumnus ekki fremur kvenkyns heldur en hinar þrjár
árstíðirnar, svo að ekki er það til fyrirstöðu. Fjórir bræður
Napoleons geta mjög vel táknað allar fjórar árstíðirnar, og
það, sem hjer fer á eftir, sannar, að því sé í raun og veru
þannig varið.
Af þessum fjórum bræðrum Napoleons er oss sagt, að þrír
hafi verið konungar. Þessir þrír konungar eru Vorið, sem
ríkir yfir blómunum, Sumarið, sem ríkir yfir uppskerunni, og
Haustið, sem ríkir yfir ávöxtunum. Svo sem þessar þrjár árs-
tíðir eiga öll sín miklu áhrif sólunni að þakka, þannig er oss
sagt, að þessir þrír bræður Napoleons hafi tekið við konung-
dómi sínum úr hendi hans og einungis ríkt í skjóli veldis
hans. Og þegar nú því er við bætt, að einn af bræðrum
Napoleons var ekki konungur, þá er það vegna þess, að ein
af árstíðunum — Veturinn, ríkir yfir engu. En ef menn nú
vildu bera það fyrir sig, til þess að ónýta samlíkingu vora,
að veturinn væri þó ekki valdalaus, og ef menn vildu eigna
honum hin hörmulegu yfirráð frostanna og snjóanna, er sveipa
land vort hvítum hjúp á þessari dapurlegu árstíð, þá skal ekki
standa á svari frá oss: Þessi völd, mundum vér segja, er ein-
mitt það, sem sýna á með hinni fánýtu og hlægilegu furstatign,
sem þessi bróðir Napoleons er sagður að hafa hlotið eftir að
öll ætt hans var oltin frá völdum. Þessi furstatign hefur verið
kend við þorpið Canino öðrum fremur vegna þess, að
Canino er leitt af cani, sem táknar hin hvítu hár hinnar köldu,
döpru ellli, og þau minna á veturinn, því að fyrir augum
skáldsins eru skógarnir, sem skreyta hlíðar vorar, hárlokkar,
og þegar veturinn þekur þá með hrími sínu, er það hin hvítu
hár hinnar þverrandi náttúru á gamalsaldri ársins.
Cum gelidus crescit canis in montibus humor.
Þannig er hinn svokallaði fursti af Canino ekkert annað
en persónugerfi vetrarins. Veturinn byrjar þegar þrjár góðu