Eimreiðin - 01.10.1927, Qupperneq 22
326
KÓRVILLAN
eimreiðin
ingar, að sólin kemur upp í austri og gengur undir í vestri,
svo sem allir vita. En fyrir sjónum þeirra, sem búa á útnesj-
um landanna, virðist sólin rísa upp úr austurhafinu á morgn-
ana og sökkva í vesturhafið á kvöldin. Og þannig er það enn-
fremur, er skáldin lýsa upprás og niðurgöngu sólarinnar.
Þetta er nú alt og sumt, sem meint er með því, að Na-
poleon hafi komið frá austri (Egiptalandi) og ríkt yfir Frakk-
landi, en að hann hafi horfið aftur í vesturhöfin eftir tólf ára
ríkisstjórn. Þessi tólf ár eru ekkert annað en hinar tólf stundir
dagsins, þegar sólin er yfir sjóndeildarhringnum.
»Hann ríkti ekki nerna einn dag« segir höfundur Les
Nouvelles Messéniennes, er hann talar um Napoleon, og lýs-
ing hans á upprás hans, hnignun og falli sýnir, að þetta
indæla skáld hefur alveg eins og vér ekki skoðað Napoleon
sem annað en ímynd sólarinnar. Og í sannleika er hann
heldur ekkert annað en það. Nafn hans sannar það, nafn
móður hans sannar það, hinar þrjár systur hans, hinir fjórir
bræður hans, hinar tvær konur hans, sonur hans, hershöfð-
ingjar hans, afrek hans — alt sannar það. Það sannar enn-
fremur fæðingarstaður hans, staðirnir, sem hann er sagður að
hafa komið frá, er hann hófst til valda, tíminn, er hann
ríkti, löndin sem hann ríkti í og þau, er hann beið ósigur í,
og sá staður, þar sem hann að síðustu hvarf, fölnaður og
niðurlægður eftir hina glæsilegu göngu sína — svo að vér
tökum oss í munn orð skáldsins Casimir Delavigne.
Það hefur nú þannig verið sannað, að þessi hetja vorrar
aldar, er menn hafa hugsað sjer, er ekkert annað en ímynduð
vera, sem fengið hefur einkenni sín frá sólunni. Þar af leiðir, að
Napoleon Bonaparte, sem svo mikið hefur verið rætt og ritað
um, hefur aldrei nokkurntíma verið til. Og þessi villa, sem svo
margir hafa gert sig seka í, stafar at þeirri hlægilegu flónsku
að skoða goðsagnir nítjándu aldarinnar sögulegan sannleika.
Vér hefðum ennfremur til stuðnings skoðun vorri getað
bent á fjölda konunglegra tilskipana, þar sem dagsetningin,
sem ómótmælanlega er rétt, kemur auðsjáanlega í bága við
ríkisstjórn þessa ímyndaða Napoleons, en vér höfum haft
gildar ástæður til að sleppa því.