Eimreiðin - 01.10.1927, Side 23
EIMREIÐIN
Ríkisskuldir íslands.
Það mun vera nokkuð almenn skoðun enn þann dag í dag
meðal alþýðu manna hér á landi, að ríkisskuldir Islands séu
tiltölulega miklu minni en flestra eða allra annara ríkja. í
sjálfu sér er þessi skoðun eðlileg, og ber þar einkum tvent
til. I fyrsta lagi var Island skuldlaust land langt fram yfir
aldamótin síðustu og ekki um neinar landssjóðsskuldir að ræða
við útlönd. Það eru ekki nema nítján ár síðan landið tók í
fyrsta sinni lán erlendis. En eftir að lagt var út á skuldabraut-
ina hefur hvert lánið rekið annað svo ört, að almenningur
hefur tæpast fylgst með. Landsreikningana sjá fáir, en aftur
á móti skortir ekki allskonar meira og minna óljósar frásagnir
um fjárhaginn um það leyti sem þingkosningar fara fram.
Sumt þessara frásagna setur almenningur þá stundum í sam-
band við kosningaæsingar, sennilega ekki altaf að ósekju, og
tekur ekki meira en svo mark á þeim. I öðru lagi höfum vér Is-
lendingar aldrei haft neitt af þeim miklu útgjöldum að segja, sem
hjá öðrum þjóðum fara til hermála. Víða eru þau útgjöld hæsti
gjaldaliðurinn á rekstursreikningi þjóðabúanna. Allir hafa heyrt
getið um hinar gífurlegu hernaðarskuldir eftir ófriðinn mikla. En
einnig þau ríkin, sem að vísu hafa ekki átt í ófriði undanfarið,
en halda uppi varnarskyldu, verja árlega háum upphæðum til
hermálanna. Þannig fór alt að því Vs af tekjum danska ríkisins
árið 1926 til hermálanna. Sama ár voru útgjöld Norðmanna
til hermála samkvæmt fjárhagsáætluninni nál. Vð hluti af öllum
tekjum ríkisins það ár, Búlgara V5, Tékkóslóvaka Vs, Finna
Vó, Frakka Vð, Svía Vs, Spánverja V4, Svisslendinga 1/4 og
Englendinga V7 hluti af árstekjunum. Þó að hlutföll þessi séu
ekki algerlega nákvæm, vegna þess hve mismunandi aðferðum
er beitt við uppgerð á tekjum og gjöldum hinna ýmsu ríkja,
ættu þau að vera nægilega trygg til þess, að vér gætum fengið
nokkra hugmynd um hernaðarkvaðirnar. Hvernig mundi nú
ástatt um íslenzka ríkið, ef það hefði orðið að greiða svo sem
fimta hluta af árstekjum sínum til þess að halda úti her og