Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Qupperneq 26

Eimreiðin - 01.10.1927, Qupperneq 26
330 RÍKISSKULDIR ÍSLANDS EIMREIDIN falt eldri eru og hafa öldum saman haft byrðir að bera, sem vér höfum aldrei haft neitt af að segja. En ef vér tökum bæði hinar útlendu og innlendu ríkisskuldir íslands og berum þær saman við ríkisskuldir annara ríkja í heild, verður útkoman nokkur önnur og hagstæðari fyrir oss. Þá verður ísland með lægstar ríkisskuldir allra Norðurlandaríkjanna fimm. Næst er Finnland, þá Svíþjóð, þar næst Danmörk og skuldugastur er Noregur. Þrátt fyrir allar hinar mörgu lántökur eru ríkis- skuldir Islands ekki ennþá orðnar hlutfallslega eins háar og hinna ríkjanna á Norðurlöndum og verða vonandi aldrei. En aftur á móti er það athyglisvert, hve skuldir Islands við út- lönd eru mikið hærri en hinar innlendu skuldir þess. Eins og að líkindum lætur verða skiftar skoðanir um það, hve ráðlegt sé fyrir fátæka og fámenna þjóð eins og Islend- inga að taka mikil lán erlendis. Mest er undir því komið, til hvers lánin eru notuð, hvort þau ganga til þarflegra fyrirtækja eða eru aðeins eyðslulán, sem ekkert gefa af sér. Um megnið af þeim útlendum Iánum, sem ríkið hefur tekið undanfarið, verður vonandi hægt að segja með sanni, að þau hafi gengið til nauðsynlegra og þarflegra fyrirtækja, og ef til vill hefðu framfarirnar hér á landi síðustu árin ekki verið eins miklar, ef þessi lán hefðu aldrei verið tekin. En það virðist liggja í augum uppi, að meiri gætni þurfi að viðhafa um erlendis lántökur smáríkja en hinna fjölmennu og auðugu. Möguleik- arnir eru fleiri hjá stórþjóðinni til þess að hamla gegn áhrif- um skuldabyrðanna en hjá kotþjóð með fjörlitlu viðskiftalífi og fábreyttum atvinnuvegum. Eitt misstigið spor í fjármálum getur komið smáþjóðinni á kaldan klaka, þótt samskonar spor hjá stórþjóðinni verði henni aðeins stundarhnekkir. Væri ekki ráð fyrir oss að athuga aðferðir Svisslendinga og Hollendinga, reyna að losa oss sem mest yið erlendu lánin, breyta þeim í innlend lán? Sparisjóðsfé í íslenzkum bönkum nemur nú meir en 30 miljónum króna. Næsta ólíklegt er, að landsmönnum þætti verra að eiga fé sitt inni hjá ríkinu en bönkunum, einkum ef ríkið greiddi eitthvað hærri vexti en bankarnir. Og leiðin þessi virðist heppilegri fyrir hag almennings og velferð ríkis- ins, ef hægt er að koma henni við, en hin leiðin, að greiða árlega út úr landinu svo hundruðum þúsunda skiftir í vexti af
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.