Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Side 40

Eimreiðin - 01.10.1927, Side 40
344 NORÐURLJÓS eimreiðin háloftinu, sýnist oss sem þær hverfi að einum depli, enda þótt þær í raun og veru séu samhliða. Þær mynda norðljósa- hjálm. Faldar myndast með því móti, að geislasyrpa frá sól- unni, sem lýstur niður í lofthjúpinn, breiðist út á tvær hendur, unz hún er orðin að þunnu bandi yfir þveran himinn frá austri til vesturs. En þetta getur aðeins átt sér stað við sér- staka afstöðu jarðar og sólar, enda eru faldarnir kvikir mjög og hverfulir. Það er einkenni manna, að því fleira sem þeir vita því forvitnari verða þeir. — Enda þótt Birkeland og Störmer hafi mikið glætt skilning vorn á tilkomu norðurljósa eru samt margir þeir hlutir ótaldir, sem oss fýsir að vita skil á. Hvernig stendur á því, að smáagnir, hlaðnar rafmagni, skuli tendra norðurljós, þegar þeim lýstur niður í lofthjúpinn? Og hvaða efni er það í loftinu, sem gerist lýsandi, og hvernig er það á sig komið? Þessi atriði hefur prófessor Vegard eink- um tekið sér fyrir hendur að rannsaka. Andrúmsloft vort er aðallega samsett af súrefni og kæfi- efni. Þegar hærra dregur minka þessar þyngri lofttegundir brátt, og má ætla að aðrar léttari verði meir áberandi, eink- um vetni og helíum. Vér vitum, að þegar í 7 km. hæð er súrefnið í loftinu orðið svo lítið, að flugmenn, sem hærra fara (alt að því 12 km.), verða að hafa með sér súrefni á flöskum, til þess að geta andað. En hvernig ættum vér að fá fulla vissu um efni lofthjúpsins í 100 km. hæð eða meira? Helsta ráðið til þess er að rannsaka litróf norðurljósanna. Þau eru oss því nær ein til frásagna um það, sem fyrir er svo langt ofar jörðu. I litrófi norðurljóssins ber mest á einni gulgrænni línu, en auk þess má og sjá nokkrar aðrar svo daufar og hverfular, að erfitt er að mæla bylgjulengd þeirra. Margar tilraunir höfðu verið gerðar til að ákveða línurnar, en niðurstöðurnar voru bæði sundurleitar og lítt ábyggilegar. Ekki virtust þær heldur samsvara litrófslínum af nokkru efni því, er menn þekkja. Hefur þess því verið getið til af Alfred Wegener, að »norðljósalínan« stafaði frá mjög léttri og óþektri loft- tegund yzt í lofthjúpi jarðarinnar; nefndi Wegener hana geókóróníum. En nú ætla flestir þetta heilaspuna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.