Eimreiðin - 01.10.1927, Blaðsíða 42
346
NORÐURLJÓS
EIMREIÐIN
af kæfiefnisís. Þá var katóðugeislum varpað á ísinn. Tók hann þá
þegar að lýsa með skærum grænleitum bjarma, er minti mjög á
litarhátt norðurljóssins. Þegar ísbjarminn var skoðaður í litsjá,
kom þegar í ljós, að litróf hans líktist mjög litrófi norðurljóss.
Bláu og fjólubláu línurnar voru nákvæmlega eins. I grænum
lit kom fram mjótt band á sama stað og höfuðlína norður-
Ijóssins. —
Tilraunin virðist því hafa leitt mjög gildar Iíkur fyrir því,
að á yztu takmörkum lofthjúpsins muni vera svífandi ísryk úr
kæfiefni, sem að nokkru leyti er rafmagnað. ísagnirnar eru
vitanlega svo smáar, að þær eru með öllu ósýnilegar berum
augum. Þær mundu sífelt vera á fleygiferð, ýmist hefjast eða
hníga, ýmist rafmagnast eða afmagnast. Þær mundu dreifa
sólarljósinu og valda miklu um bláma himinsins. Segulsvið
jarðarinnar mundi leitast við að safna þeim um segul-
miðbauginn, og þar mundi fjarðlægð þeirra frá jörðu verða
mest. Stendur það og heima við þá sannreynd, að norður-
Ijósin verða því hærri sem sunnar dregur. Loks má. ætla, að
slíkur »rafmagnshjúpur« um jörðuna mundi hafa áhrif á loft-
skeytabylgjur og langdrægni þeirra.
Þess ber að geta, að allmiklar brigður hafa verið bornar á
tilraun Vegards og ályktanir þær, sem hann hefur dregið af
henni og nú hafa verið lauslega taldar. Amerískur vísinda-
maður hefur endurtekið tilraunina, en aðeins haft völ á full-
komnari litsjá, heldur en þeirri sem Vegard notaði. Hefur þá
græna bandið í litrófi kæfiefnis-íssins greinst í sundur í fleiri
skarpar línur, en engin þeirra féll algerlega saman við grænu
höfuðlínuna í Iitrófi norðurljóssins. — En hér er þess að
gæta, hve erfitt það muni vera að fá öll sömu skilyrði við
slíka tilraun í smáum stíl eins og þau eru úti í geimnum,
mörg hundruð km. ofar jörðu. Vér vitum t. d. eigi um hraða
katóðugeisla þeirra, sem mynda norðurljósin og heldur ekki
um stærð ísagnanna, sem þeim lýstur við. Þessu lík atriði gætu
verið nægileg ástæða fyrir því, að nokkurs mismunar kendi á
litrófi norðurljóssins og litrófi ísbjarmans við tilraun Vegards.
Rannsóknir á þessu efni munu ennþá vera sóttar af kappi,
og því óséð, hver leikslokin verða. En jafnvel þótt ráðning