Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Page 44

Eimreiðin - 01.10.1927, Page 44
EIMREIÐIN Skriftamál á nýársnótt. Smásaga eftir fiermann Sudermann. [Hermann Sudermann er eitthvert bezta skáld Þjóðverja, sem nú er uppi. Hann er fæddur 1857, stundaði sögu- og tungumálanám við há- skólana í Königsberg og Berlín, en byrjaði einnig snemma að fást við ritstörf. Eftir hann liggur fjöldi skáldsagna, sem hafa náð afarmikilli út- breiðslu og vinsældum. Hann hefur einnig samið mörg leikrit, sem mikið þykir til koma. Eftirfarandi smásaga er þýdd úr sögusafni eftir hann, sem nefnist „Im Zwielicht". Sudermann varð sjötugur 30. september síðastliðinn, og var honum þá margskonar sómi sýndur af dáendum sínum, en þá á hann fjölmarga, ekki að eins í Þýzkalandi heldur og víðsvegar um allan heim]. Ég þakka guði, kæra frú, fyrir að mega nú aftur sitja við hlið yðar, svo við getum rabbað saman í næði. Umstang helgidaganna er loksins úti, og nú megið þér vera að því aftur að sinna mér ofurlítið. O, þessi jólavika! Ég held að einhver illur andi hafi fundið upp á henni til þess að skaprauna okkur piparsveinunum, leiða okkur einstæðingunum sem skýrast fyrir sjónir alla auðn- ina í lífi sjálfra okkar. Oðrum er þessi tími gleðitími, okkur er hann til kvalar. Auðvitað erum við ekki allir einstæðingar, því okkar er einnig gleðin sú að gera aðra glaða, en það er sú gleði ein, sem setur hátíðabrag á alla tyllidaga. Þó er sú gleði, sem veitist við það að taka þátt í annara gleði, blandin beiskju í hugum okkar, og þessari önuglyndis-þrá, sem ég vil kalla »giftingarþrá«, gagnstætt orðinu heimþrá. Þér spyrjið hvers vegna ég hafi ekki komið og úthelt hjarta mínu. Þér spyrjið af meðáumkvun, þér sem eruð jafn örar á alúðina og aðrar konur á dutlunga. Málið hefur sínar orsakir. Munið þér ekki eftir því, sem Speidel segir í sinni óvið- jafnanlegu bók »Einmana spörfuglar«? Þér senduð mér hana á þriðja í jólum, vissuð hvernig sálarástandi mínu var varið. »Sá sem er piparsveinn að upplagi æskir ekki meðaumkv- unar, hann vill fá að njóta ólundar sinnar í næði«, segir Speidel.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.