Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Side 46

Eimreiðin - 01.10.1927, Side 46
350 SKRIFTAMÁL Á NÝÁRSNÓTT EIMREIDIN og því, hvernig hann hniklar brýrnar. Hann húkir hreyfingar- laus í ruggustólnum og heldur báðum höndum um stólbrúð- urnar eins og þær væru hækjur. Engin hræring er sýnileg á honum nema hvað kjálkarnir ganga í sífellu, eins og hann sé að jóðla á einhverju. I legubekk við hlið honum situr hinn öldungurinn, hár og magur, með óreglulega lagað en gáfu- legt höfuð á herðamjóum bol. Ennið er hátt og hvelft. Hann reykir úr langri pípu, en það sýnist alveg vera að deyja í henni. I snoðrökuðu andliti hans, sem er afarhrukkótt og skorpið í umgerð snjóhvítra hárlokkanna, vottar fyrir þessu hlýja og viðfeldna öldungsbrosi, sem er einkenni þolgæðis og sálarfriðar í ellinni. Báðir þögðu. Hið eina, sem rauf dauðakyrðina í herberg- inu, var létt suðið í brennandi olíunni á lampanum, sem bland- aðist saman við örveikí eimhljóðið úr tóbakssafanum í píp- unni. Klukkan á veggnum í rökkrinu að baki þeim sló harka- lega ellefu. »Nú er tíminn kominn, er hún var vön að búa til púnsið handa okkur«, sagði maðurinn með háa ennið. Röddin var veik og titraði lítið eitt. »]á, nú er tíminn kominn*, endurtók hinn. Rödd hans var hörkuleg. Það var eins og enn leyndist í henni eitthvað af gnýnum í skipunarorðum foringjans. »Aldrei datt mér í hug, að svona ömurlegt yrði, þegar hún væri farin«, hélt hinn áfram. Húsbóndinn kinkaði kolli, en kjálkarnir gengu í sífellu eins og áður. »Hún bruggaði nýárspúnsið handa okkur fjörutíu og fjór- um sinnum«, hóf hinn máls að nýju. »Já, svo langt er nú síðan að við fluttumst til Berlínar. Þú varst strax tíður gestur hjá okkur«. »1 fyrra um þetta leyti vorum við hér öll saman, glöð og ánægð«, hélt vinur hans áfram. »Hún sat þarna í hæginda- stólnum og prjónaði sokka handa elzta barni Páls, og keptist við, því hún sagðist verða að ljúka þeim fyrir klukkan tólf. Og það gerði hún líka. Svo drukkum við púnsið okkar og ræddum í makindum um dauðann. En tveim mánuðum síðar var hún borin til grafar. Eins og þú veizt, hef ég skrifað
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.