Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1927, Page 71

Eimreiðin - 01.10.1927, Page 71
EIMREIÐIN BRÉF UM MERKA BÓK 375 um bragliða, hvort heldur sem átt er við bundið eða óbundið mál. — Og með fornmálið íslenzka ber líka þess að gæta, að þar var áreiðan- lega meira tekið tillit til langra og stuttra atkvæða, eins og menn nú vita um kveðskapinn, heldur en á síðari tímum. — Á skoðun hans um kenslu í þessum fræðum í hofum get ég alls ekki fallist. En þó ég nú sjái, að ýmsu verður að breyta í kerfi Sigurðar, þá er það engu að síður merkilegt og aðdáanlegt. Mér finst svo margt í bók- inni gott til fróðleiks og athugunar, og hún í heild sinni bera vott um sjaldgæft sálarþrek og skarpskygni, og auk þess dæmafáa ritsnild og smekkvísi og næmt eyra fyrir fegurð íslenzkrar tungu, að ég tel !át Sig- urðar eitt hið mesta stórtjón, sem bókmentir okkar hafa beðið nýlega. Ég játa það með innilegu þakklæti, að ég hef mikið af bókinni lært, og hún hefur opnað á mér og öðrum augun fyrir nýju og ókunnu landi, sem nú ber að kanna, og kanna vandlega. I lok bréfs síns minnist S. Kr. P. á Kepler og lög hans. Ég vildi heldur líkja bók Sigurðar við verk annars mikils stjörnufræðings, kenn- ara Keplers, Tycho Brahe. Eins og kunnugt er var hann nákvæmasti og vandvirkasti stjörnufræðingur Norðurálfunnar á sínum tíma, og það Ieið á löngu þangað til menn fengu öllu betri athuganir en þær, sem hann hafði gert. — Þegar Copernicus kom með hina nýju kenningu sína, gat Tycho samt ekki aðhylst hana, — honum fanst hún ekki geta samrýmst því, sem hann þekti þá, og hann kom svo sjálfur með kerfi, upphugsað vandlega og af mikilli snilli. En hann hélt áfram að safna og athuga, og þessar athuganir hans sjálfs, sem honum entist ekki aldur til að vinna úr, sýndu og sönnuðu það greinilega, þegar Kepler og síðar Newton héldu áfram rannsóknunum, að Copernicus hafði rétt að mæla, og að kerfi Tychos var hugarburður einn. Ég gæti trúað því, að forlög þessarar bókar yrði að sumu leyti nokk- uð lík. Bæði Kepler og aðrir á eftir honum bygðu á athugunum Tychos, en höfnuðu ályktunum hans. Og heiður Tychos hefur ekkert rýrst við það, því enginn vafi Ieikur á því, að ef hann hefði lifað og starfað lengur, þá hefði hann sjálfur komist að líkri niðurstöðu. Nú er víst, að ef Sigurður sálugi, eins óvenjulega skarpur og sannleikselskandi maður og hann var, hefði lifað lengur og fengið að njófa sín betur, þá hefði hann vafalaust fengið ýmiskonar þekkingu, sem hefði getað komið hon- um á alt aðrar skoðanir. Hann hefði þá t. d. getað kynt sér helztu nú- tímarit um hrynjandi í lifandi málum, þau eru mörg til, ogjná mikið af þeim Iæra. Og ekki sízt má vænta mikils af rannsóknum þeim, sem nú má gera með verkfærum. Menn eru nú komnir talsvert langt í að rann- saka einstök hljóð á þann hátt, og það má segja, að ekkert er vissara en það, að fyr eða sfðar verður hrynjandi íslenzkrar tungu rannsökuð á þann hátt. — En alveg 'víst er það, að mikill þorri af einstökum at- hugunum Sigurðar sáluga í þessari bók hans, og sumir partar af kerfinu ef til vill, munu þá og um alla tíð halda gildi sínu. Og bezt gæti ég trúað því, að þeir menn, sem forsjónin hefur ætlað til að vinna Iík af-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.